Viðskipti innlent

Nýja Kaupþing ræður umboðsmann viðskiptavina

Stjórn Nýja Kaupþings banka hefur ákveðið að auglýsa eftir umboðsmanni viðskiptavina. Þetta er í samræmi við tillögur sem vinnuhópur á vegum ríkisstjórnarinnar kynnti þann 2. desember síðastliðinn. Umboðsmaðurinn verður óháður og starfar í umboði stjórnar bankans.

Í tilkynningu um málið segir að hlutverk umboðsmannsins sé meðal annars að gæta þess að bankinn mismuni ekki viðskiptavinum með óeðlilegum hætti, að ferli við endurskipulagningu fyrirtækja og aðrar mikilvægar ráðstafanir sé gagnsætt og skráð, og að bankinn gæti að samkeppnissjónarmiðum. Staðan verður auglýst á næstu dögum.

„Hlutverk umboðsmanns er að yfirfara ákvarðanir bankans um lánaaðlögun fyrirtækja áður en þær koma til framkvæmda, með tilliti til þess að meðhöndlun mála sé í samræmi við tilmæli og verklagsreglur og að sanngirni sé gætt við úrlausn mála. Við bindum miklar vonir við starf umboðsmanns og að það megi auka gagnsæi og traust á starf bankans," segir Magnús Gunnarsson formaður stjórnar bankans.

Þá hefur stjórn bankans samþykkt að stofna fjárfestingarfélag og fasteignarfélag til að halda utan um eignarhald Kaupþings á þeim eignum sem bankinn kann að eignast á næstu mánuðum vegna erfiðleika í rekstri stærri fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann.

Er þetta gert í samræmi við tilmæli stjórnvalda að því er segir í tilkynningu um málið.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×