Viðskipti innlent

Straumur í viðskipti í kauphöllinni í vikunni

Það vakti nokkra undrun í morgun að hlutabréf með Straum voru ekki tekin til viðskipta í kauphöllinni. Það mun hinsvegar gerast fyrr en síðar í þessari viku samkvæmt heimildum visir.is.

Straumur hafði farið fram endurupptöku viðskipta í síðustu viku enda hafði félaginu þá tekist að endurfjármagna sambankalán í mjög erfiðri stöðu og reksturinn með eðlilegum hætti miðað við aðstæður. Þar að auki er búið að semja við Nýja Kaupþing um viðskiptavakt með hlutabréf í Straumi.

Það er Fjármálaeftirlitið sem tekur ákvörðun um endurkomu Straums í kauphöllina og er lögmanni FME falið að tilkynna kauphöllnni um slíkt um klukkutíma fyrir opnun markaðarins þann dag sem Straumur kemur inn að nýju.

Ein tilgátan um afhverju viðskipti með Straum eru ekki hafin er sú að lögmaður FME hefði einfadlega sofið yfir sig í morgun.

Sem fyrr segir fékk Straumur erlent lán í síðustu viku upp á 133 milljónir evra. Þeir sem til þekkja segja að þar hafi forráðmenn Straums unnið kraftaverk því lánsfjármarkaður hefur verið nær algerlega lokaður fyrir íslensk félög og fjármálastofnanir síðan bankarnir hrundu.

Um endurfjármögnun var að ræða því lánið verður notað til að greiða upp 200 milljón kr. sambankalán sem er á gjalddaga á morgun, þriðjudag.

Straumur hefur samið við Nýja Kaupþing um viðskiptavakt og sendi frá sér leiðrétta tilkynningu um skilmálanna í morgun.

Í tilkynningunni segir: „Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í að lágmarki 1.000.000 hluta í Straumi og skulu tilboð vera á því gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,25% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að eiga eða selja dag hvern skal vera 25.000.000 kr. að nafnverði.

Nýja Kaupþing mun hefja viðskiptavaktina tveim dögum eftir að viðskipti með hlutabréf Straums hefjast að nýju."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×