Enski boltinn

Hughes vill fimm leikmenn í janúar

NordicPhotos/GettyImages

Mark Hughes, stjóri Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, segist vera á höttunum eftir fjórum til fimm leikmönnum þegar leikmannamarkaðurinn opnar í janúar.

"Við erum að leita að mönnum sem komið gætu jafnvægi á liðið. Við höfum verið orðaðir við stór nöfn en það er ekki hlaupið að því að kaupa menn frá liðum sem eru í Meistaradeildinni í janúar og það eru kannski ekki endilega menn sem spila þær stöður sem við erum að leita að. Við þurfum að bæta okkur í fjórum til fimm leikstöðum en vandamálið er umboðsmennirnir sem reyna að nýta sér þá stöðu sem við erum í," sagði Hughes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×