Starfsmenn Samherja fá 524 þúsund krónur í jólabónus Kjartan Atli Kjartansson skrifar 5. desember 2014 15:25 Starfsmenn Samherja fá yfir hálfa milljón í jólabónus.
Starfsmenn Samherja í landi fá 450 þúsund króna launauppbót í desember ofan á umsamda 74 þúsund krónu desemberuppbót. Því fá þeir alls 524 þúsund krónur í sinn hlut í jólamánuðinum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að greiðslan fari til starfsmanna sem hafi verið í fullu starfi árið 2014. Þar segir einnig að samherji hafi greitt 61 þúsund krónur aukalega í orlofsuppbót starfsmanna í maí og greiðar því fyrirtækið rúma hálfa milljón til hvers starfsmanns umfram kjarasamninga. Í tilkynningunni segir enn fremur að meðal mánaðarlaun starfsfólks í fiskivinnslu í Eyjafirði séu 410 þúsund krónur. Í tilkynningunni, sem Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson skrifa undir, segir orðrétt: „Það er alltaf ánægjulegt þegar hægt er að gera betur við starfsfólk, árið hefur gengið vel og þannig skapast tilefni. Við erum því glaðir í dag og mætum áskorunum komandi árs með sama krafti og áður sannfærðir um að við, í samstarfi við ykkur, náum að gera betur á næsta ári en því síðasta.“ Desemberuppbótin í ár er svipuð og undanfarin ár. Í fyrra var hún örlítið hærri, þá var aukabónusinn 500 þúsund krónur, ofan á umsömdu upphæðina. Þar áður var uppbótin 378 þúsund krónur. Hagnaður fyrirtækisins í fyrra var 22 milljarðar króna og því ljóst að vel gengur. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að það greiði 1,7 milljarð í tekjuskatt og einn milljarð í veiðileyfagjald.
Tengdar fréttir Jól hjá Samherja, borga yfir 400.000 í jólabónus Tæplega 500 starfsmenn Samherja, sem starfa í landvinnslu fyrirtækisins, fá 378 þúsund krónur i launauppbót til viðbótar 50 þúsund króna desemberuppbótar. 7. desember 2012 06:27 Samherjafólk fær hálfa milljón í jólabónus Vel gengur hjá útgerðarfyrirtækinu Samherja. Þeir greiða starfsfólki sínu í landi samtals 500 þúsund krónur í aukabónus. 20. desember 2013 13:35 Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sjá meira
Jól hjá Samherja, borga yfir 400.000 í jólabónus Tæplega 500 starfsmenn Samherja, sem starfa í landvinnslu fyrirtækisins, fá 378 þúsund krónur i launauppbót til viðbótar 50 þúsund króna desemberuppbótar. 7. desember 2012 06:27
Samherjafólk fær hálfa milljón í jólabónus Vel gengur hjá útgerðarfyrirtækinu Samherja. Þeir greiða starfsfólki sínu í landi samtals 500 þúsund krónur í aukabónus. 20. desember 2013 13:35
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent