Viðskipti innlent

Jól hjá Samherja, borga yfir 400.000 í jólabónus

Tæplega 500 starfsmenn Samherja, sem starfa í landvinnslu fyrirtækisins, fá 378 þúsund krónur i launauppbót til viðbótar 50 þúsund króna desemberuppbótar.

Fyrr á árinu greiddi félagið hverjum starfsmanni 72 þúsund króna orlofsuppbót, þannig að fyrirtækið greiðir landverkafólki sínu 450 þúsund krónur í ár, umfram kjarasamninga.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri segir í tilkynningu að rekstur landvinnslunnar hafi gengið vel á árinu og að starfsfólk hafi enn á ný skilað góðu verki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×