Viðskipti innlent

Raungengi krónunnar í sögulegum lægðum

Raungengi krónu náði sögulegum lægðum í nóvember og var það ríflega fimmtungi lægra en þegar krónan stóð sem veikust í árslok 2001. Verðlag hérlendis er þannig orðið afar lágt miðað við helstu viðskiptaþjóðir okkar, og það sama gildir um kaupmátt Íslendinga erlendis.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar er sagt frá því að Seðlabankinn birti nýverið útreikninga sína á raungengi og kemur þar fram að raungengið lækkaði í nóvember um ríflega 10%, ef miðað er við hlutfallslegt verðlag. Hefur raungengi krónu þá lækkað um ríflega 40% frá síðustu áramótum á þennan kvarða.

Gengi krónu, miðað við gengisvísitölu, hefur raunar lækkað um rúm 48% á þessu tímabili en á móti vegur að verðbólga hefur verið umtalsvert meiri hér á landi en í viðskiptalöndum okkar.

Þetta afar lága raungengi er til marks um hversu langt nafngengi krónu er undir jafnvægi. Þótt krónan hafi sótt verulega í sig veðrið frá því hún var sett á skilyrt flot fyrir þremur dögum síðan er gengi hennar enn talsvert undir því jafnvægisgengi sem stuðlar að ytra sem innra jafnvægi í hagkerfinu.

Til að mynda má ætla að raungengið, miðað við stöðu krónunnar þegar þetta er ritað, sé ríflega 20% undir meðaltali undanfarinna áratuga. Það meðaltal endurspeglar raunar líklega nokkuð of hátt raungengi að jafnaði, sem endurspeglast í því að þrálátur halli hefur verið á utanríkisviðskiptum á undanförnum áratugum.

Þrátt fyrir það telur greiningin krónuna enn eiga inni talsverða styrkingu til meðallangs tíma, ef litið er fram hjá þeim tímabundna þrýstingi sem skammtímastöður erlendra fjárfesta í krónum kunna að setja á hana þegar höftum á fjármagnsflutninga verður aflétt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×