Viðskipti innlent

Atlantic Petroleum úthlutað stóru olíuleitarsvæði

Atlantic Petroleum hefur fengið úthlutað stóru nýju olíuleitarsvæði fyrir utan Færeyjar en þetta var í þriðja sinn sem færeysk stjórnvöld úthluta leitarsvæðum við eyjarnar.

Svæðið er samtals 5.312 ferkílómetrar að stærð og fékk Atlantic Petroleum 10% af því til olíuleitar. StatoilHydro fékk 50%, DONG Energy 30% og Faroe Petroleum 10%.

Í tilkynningu um málið segir Wilhelm Petersen forstjóri félagsins að þetta séu góðar fréttir fyrir hlutahafa þess. Úthlutun á þessu nýja leyfi til leitar og rannsókna falli fullkomnlega að langtímastefnu félagsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×