FME: Birna keypti í Glitni í góðri trú 8. desember 2008 16:56 Birna Einarsdóttir.
Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum Birnu Einarsdóttur, núverandi forstjóra Nýja Glitnis, þegar hún, eða félag hennar Melkorka ehf., keypti hlutabréf í bankanum. Kaupin gengu aldrei í gegn og því slapp Birna við tap sem varð þegar bréf í Glitni misstu verðgildi sitt. FME kemst að þeirri niðurstöðu að gögn málsins sýni að viðskiptin hafi ekki náð fram að ganga vegna vanrækslu af hálfu gamla Glitnis. „Ekkert í gögnum málsins bendir til annars en að Birna Einarsdóttir hafi verið í góðri trú og að vanefnd stafi af ástæðum sem eru óviðkomandi henni,“ segir í frétt á heimasíðu FME. „Af þeirri ástæðu er ekki tilefni til aðgerða af hálfu Fjármálaeftirlitsins gagnvart Birnu Einarsdóttur eða Melkorku ehf," segir einnig um leið og þess er getið að athugun á tilkynningar- og birtingarskyldu „gamla" Glitnis banka hf., standi enn yfir. Birna sendi starfsmönnum sínum tölvupóst í dag þar sem hún fer yfir stöðu mála hjá Glitni auk þess sem hún tæpir á niðurstöðunni. „Þá vil ég geta þess að Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lokið rannsókn á meintum hlutabréfakaupum einkahlutafélags í minni eigu, sem ég óskaði sjálf eftir," segir í póstinum. „Það er mér léttir að niðurstaða FME er afdráttarlaus um að umrædd kaup hafi ekki gengið eftir af ástæðum sem eru mér óviðkomandi." „Skilanefnd gamla bankans telur jafnframt að ekki sé grundvöllur fyrir frekari aðgerðum af hálfu bankans vegna málsins. Niðurstaðan kemur mér ekki á óvart - sjálf var ég í góðri trú. Engu að síður hefur málið tekið á mig og ég veit að þetta hefur líka verið erfitt fyrir bankann og ykkur öll," segir Birna og bætir við að hún vonist til að „þetta mál sé nú að baki og við getum öll farið að einbeita okkur að öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem blasa við."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira