Hagnaður í samkeppni 13. október 2005 14:32
Tekjur Flugleiða jukust um 18 prósent milli ára og nam veltan fyrri hluta ársins tæpum nítján milljörðum króna. Farþegum fjölgaði verulega, en á móti fjölda farþega kom lækkandi farmiðaverð og eldsneytishækkanir sem koma félaginu illa. Sigurður Helgason, forstjóri fyrirtækisins segist gera ráð fyrir að eldneytishækkanir hafi meiri áhrif á afkomuna á seinni hluta ársins. "Það er til marks um styrk félagsins og uppbyggingu að þrátt fyrir eldsneytishækkanir og aukna samkeppni í alþjóðaflugi er gert ráð fyrir að hagnaður verði af starfsemi félagsins á árinu í heild." Afkoma Flugrekstrarins er betri en í fyrra þrátt fyirir aukna samkeppni og hækkandi launakostnað og eldsneyti. Sigurður segir að skipting félagsins í móðurfélag og dótturfélög með skýra ábyrgð á eigin rekstri hefði tvímælalaust átt þátt í að styrkja afkomuna undanfarin tvö ár. Hann segir áfram haldið á sömu braut. Markmiið sé að auka enn vöxt í starfseminni og nýta tækifæri á nýjum mörkuðum í alþjóðlegu leiguflugi, fraktflugi og á fleiri sviðum. Þá segir Sigurður að félagið muni herða sókn á alþjóðlegan ferðamanna markað sem hafi skilað umtalsvertr meiri vexti í ferðaþjónustu hér á landi en í nágrannalöndum beggja vegna Atlantshafsins. Sigurður boðar einnig aukinn sveigjanleika í rekstrinum til þess að takast á við sveiflukenndan markað. Stefnt er að því að efla móðurfélagið og verður sett upp Stefnumótunar- og fjármálasvið undir forystu Einars Sig Hagnaður Flugleiða, það sem af er ári var talsvert betri en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður annars ársfjórðungs nam rúmum 900 milljónum króna. Hagnaður fyrstu sex máuði ársins nam tólf milljónum króna sem er um 900 milljón króna betri afkoma en fyrir sama tímabil í fyrra. Þá var tapið 903 milljónir króna.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira