Viðskipti innlent

Búist við betri þátttöku núna

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Við miðlaraborð. Frá fyrsta desember 2008 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf”, MP Banki, Nýi Glitnir, Nýja Kaupþing, Nýi Landsbanki og Straumur-Burðarás.
Við miðlaraborð. Frá fyrsta desember 2008 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf”, MP Banki, Nýi Glitnir, Nýja Kaupþing, Nýi Landsbanki og Straumur-Burðarás. Fréttablaðið/Valli
Útboð verður haldið á nýjum flokki ríkisbréfa klukkan tvö á morgun, miðvikudag. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf sem bera 13,75 prósenta vexti sem greiddir eru árlega.

Lokagjalddagi bréfsins er 10. desember 2010.

Í umfjöllun Greiningar Glitnis kemur fram að viðhaft verður svokallað „hollenskt fyrirkomulag“. Í því mun felast að lægsta samþykkta verð (þar með hæsta ávöxtunarkrafa) í útboðinu gildir fyrir alla kaupendur.

Greining Glitnis bendir á að þótt takmarkaður áhugi hafi verið fyrir sambærilegu útboði í síðustu viku, þar sem bréf seldust fyrir 15 milljarða króna, verði áhuginn að líkindum meiri núna. Flest bendi samt til að ríkissjóður þurfi eftir sem áður að greiða út töluverða fjárhæð á gjalddaga innlausnar annarra flokka bréfa 12. desember næstkomandi.

„Ríkissjóður hefur raunar safnað verulegum sjóðum á viðskiptareikning sinn í Seðlabanka undanfarið, og hefur því borð fyrir báru þótt greiða þurfi út talsverða fjárhæð á föstudag. Hins vegar hefur fjármögnunarþörf ríkisins vaxið hröðum skrefum undanfarna mánuði og er líklegt að talsverða skuldabréfaútgáfu þurfi til að mæta henni á næstu misserum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×