Enski boltinn

Carroll í tveggja vikna bann

Roy Carroll
Roy Carroll NordicPhotos/GettyImages

Markvörðurinn Roy Carroll hjá Derby County hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann hjá félaginu í kjölfar atviks sem átti sér stað í búningsklefa liðsins eftir tap þess gegn Crystal Palace um helgina.

Ekki hefur spurst út hvað gerðist en ljóst er að Carroll hefur farið yfir strikið.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að markvörðurinn fái nú tvær vikur til að kæla sig niður áður en hann mæti til vinnu á ný.

Carroll er 31 árs gamall og lék áður með Manchester United. Hann gekk í raðir Derby í janúar á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×