Viðskipti innlent

Leggur engar línur

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að nefnd sem skoðar umhverfi íslensks viðskiptalífs hafi frjálsar hendur í starfi sínu og henni séu ekki lagðar neinar línur. "Ég vona að það verði allt skynsamlegt og geti nýst í frumvarpssmíð og vonast til að það verði strax á haustþingi að við getum tekið til við vinnu í þessu sambandi á þingi," segir Valgerður. Nefndin var skipuð í janúar og er ætlað að skila skýrslu þann 1. september en Valgerður segist ekki geta sagt hvort farið verði nákvæmlega eftir þeim tillögum sem þar verða lagðar fram en þær verði grundvöllur umræðna. Að sögn Valgerðar mun ríkisstjórnin meta þörf á lagabreytingum eða öðrum aðgerðum í kjölfar skýrslunnar. Skýrslan verður kynnt ríkisstjórn en svo almenningi. "Markmið okkar er að auka traust í viðskiptalífinu," segir Valgerður. Aðspurð segist hún ekki geta sagt til um hversu langt ríkisstjórnin sé tilbúin að ganga til að mynda hvort fyrirtæki eða samsteypur verði brotnar upp. Meðal þeirra laga sem Valgerður telur að til greina komi að breyta eru samkeppnislög og lög um einkahlutafélög og hlutafélög.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×