Hannes ræður för í Flugleiðum 13. október 2005 14:44
Hannes Smárason stjórnar nú einn tæplega þriðjungshlut í Flugleiðum. Hann keypti á sunnudaginn helming hlutafjár í Oddaflugi af Jóni Helga Guðmundssyni í Byko. Hannes og Jón Helgi keyptu kjölfestuhlut í Flugleiðum í lok janúar og í kjölfarið voru þeir kosnir í stjórn félagsins. Hannes er stjórnarformaður Flugleiða. Viðskiptin milli Hannesar og Jóns Helga fóru fram á genginu 9,6 en það er nokkuð hærra en gengi bréfanna á markaði hefur verið og umtalsverð hækkun frá því þeir keyptu upphaflega hlut í Flugleiðum af Íslandsbanka, Straumi og fleirum. Þau viðskipti voru á genginu sjö. Að sögn Hannesar Smárasonar er greitt fyrir bréfin með reiðufé en verðið á hlut Jóns Helga er um 3,6 milljarðar. Jón Helgi innleysir því hagnað upp a rétt tæplega milljarð. Þegar kaupin áttu sér stað í janúar lýstu Jón Helgi og Hannes því yfir að um langtímafjárfestingu væri að ræða. Síðar hefur kvarnast upp úr samstarfi þeirra og vinna þeir nú að því að skipta upp þeim fjárfestingum sem þeir hafa staðið að í sameiningu. Að sögn Hannesar Smárasonar verður boðað til nýs hluthafafundar á næstunni þar sem fyllt verður skarð Jóns Helga í stjórninni. Hannes segir ekki búið að ákveða hvenær boðað verði til slíks fundar. "Ég horfi á það að Flugleiðir eru spennandi vettvangur. Það kom strax frá Jóni Helga að það er ekki á hans meginverksviði að sinna flugrekstri en þetta er sá vettvangur sem ég hyggst einbeita mér að á næstunni," segir Hannes. Hann segir að búast megi við einhverjum skipulagsbreytingum hjá félaginu en telur ekki tímabært að ræða nánar um möguleika í þeim efnum. "Það hafa hátt í sjötíu prósent í félaginu skipt um hendur á síðustu mánuðum. Við auðvitað ætlum okkur að skipta okkur að rekstrinum þótt við séum ekki að kynna nein ákveðin plön núna. Það er eitthvað sem tíminn verður að leiða í ljós," segir hann. Hann telur mikil sóknarfæri liggja í rekstri Flugleiða og nefnir sem dæmi um það þá ákvörðun að hefja flug til San Francisco í Bandaríkjunum næsta vor. "Menn horfa til þess að það séu áfram mikil tækifæri í ferðamannageiranum og Flugleiðir ætla að njóta góðs af því," segir Hannes. Jón Helgi Guðmundsson segir að salan á hlutnum í Oddaflugi tengist því að Hannes og hann séu nú að skipta upp fjárfestingum sem þeir hafi áður staðið að sameiginlega. Þeir eiga einnig stóran hlut í KB banka. Sá hlutur er nú um tólf milljarða króna virði. Jón Helgi gerir ráð fyrir að þeim eignarhlut verði einnig skipt upp innan tíðar. Jón Helgi er sáttur við þá ávöxtun sem hann hefur fengið með kaupunum í Flugleiðum. "Flugleiðir eru gott félag og ég held að það eigi framtíðina fyrir sér. Það er mjög öflugt fólk þarna sem hefur verið að búa til mjög gott fyrirtæki og þar á ég við Sigurð Helgason og hans helstu samstarfsmenn," segir Jón Helgi. Hannes Smárasonræður nú yfir stærsta hlutnum í FlugleiðumMYND/GVA
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira