Sálfræðingurinn og svefnsérfræðingurinn Erla Björnsdóttir hefur ferðast víða með eiginmanni sínum og fjórum sonum þeirra. Hún var samt ekki lengi að velja sinn uppáhalds ferðamannastað.
„Austfirðirnir eru uppáhalds staður minn á landinu. Þar er ótrúlega fallegt og stórbrotin náttúran þar hefur uppá svo margt skemmtilegt að bjóða. Sjálf bjó ég lengi á Neskaupstað og maðurinn minn og allt mitt tengdafólk er að austan þannig að ég á mjög sterkar rætur þangað. Mjóifjórður er að mínu mati fallegasti staður landsins.

Þar er kyrrðin algjör og að sitja þar í fjörunni við varðeld, umlukin þessum stóru fjöllum og horfa útá spegilsléttan sjóinn er ævintýri líkast – tengingin við náttúruna verður varla meiri en akkúrat þar.“

Besta stefnumót síðasta árs
Fjölskyldan hefur ferðast töluvert um Austurlandið og gengið mikið á svæðinu.

„Á Austurlandi eru margar frábærar gönguleiðir sem eru einnig fáfarnar þannig að maður upplifir sig nánast eins og að vera einn í heiminum sem getur verið kærkomin hvíld frá amstri hversdagsins. Í fyrra fórum við austur með alla strákana okkar, við dvöldum nopkkrar nætur í Mjóafirði og keyrðum svo alla Austfirðina. Við gistum á hóteli á Hornafirði þar sem við hjónin fórum á stefnumót í fjörunni þar sem sólin skein, sjórinn var spegilsléttur og við horfðum á jökulinn og fjöllin í kring og skáluðum í kampavíni – þetta var klárlega besta stefnumót síðasta árs.“


Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.