Olíutunnan yfir 135 dali 22. maí 2008 19:29 Dropinn er dýrari en aldrei fyrr.
Heimsmarkaðsverð á olíu náði nýjum hæðum í dag þegar tunnan fór yfir hundrað þrjátíu og fimm Bandaríkjadali. Hér heima hækkaði N1 síðdegis verð á bensíni og dísel hjá sér um tvær krónur. Heimsmarkaðsverð á olíutunninni lækkaði reyndar aftur þegar leið á daginn og síðdegis var tunnan á rúma hundrað þrjátíu og tvo bandaríkjadali. En tunnan kostaði þá yfir helmingi meira en hún kostaði fyrir ári. Ástæða hækkananna nú eru áhyggjur af framboði af olíu en gengið hefur nokkuð á olíubirgðir Bandaríkjamanna. Hækkandi olíuverð hefur margvísleg áhrif í för með sér en hækkanirnar reynast flugfélögum erfiðar. Þau keppast nú við að grípa til margvíslega ráðstafana til að mæta hækkunum svo sem með því að leggja á aukagjöld, sameina flug og draga úr sætaframboði. American Airlines, sem er eitt stærsta flugfélag í heimi tilkynnti í gær að það myndi minnka sætaframboð sitt í innanlandsflugi um rúmlega tíu prósent, segja upp fjölda starfsmanna og byrja að taka gjald af farþegum fyrir að innrita farangur sinn. Hér á landi hækkaði N1 síðdegis verð á bensíni og dísel hjá sér um tvær krónur. Bensínlíterinn í sjálfsafgreiðslu kostar þar nú tæpa 161 krónu og líterinn af dísel 178,6 krónur. Þær upplýsingar fengust hjá öðrum olíufélögum í dag að verið væri að skoða hækkanir en ekki hefðu verið teknar slíkar ákvarðanir.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira