Viðskipti erlent

57 prósent sam­dráttur í sölu hjá H&M

Atli Ísleifsson skrifar
Verslun H&M á Times torgi í New York í Bandaríkjunum.
Verslun H&M á Times torgi í New York í Bandaríkjunum. Getty

Heildarsala í verslunum H&M hefur dregist saman um 57 prósent í staðbundnum gjaldmiðlum. Mestur er samdrátturinn á tímabilinu sem um ræðir, 1. mars til 6. maí, á mörkuðum á Ítalíu og Spáni.

Vegna faraldursins hefur fatarisinn birt uppfærðar tölur um sölu. Í tilkynningu fyrir fyrirtækinu segir að í verslunum hafi sala dregist saman um 57 prósent, en að á sama tíma hafi netverslun aukist um 32 prósent. Aukin netsala hafi þó ekki tekist að fylla upp skarð minnkandi sölu í verslunum.

Til að bregðast við ástandinu hefur fyrirtækið gripið til fjölda aðgerða sem snúa meðal annars að innkaupum, fjárfestingum, leigu, mannauð og fjármögnun. H&M hefur lokað um fimm þúsund verslunum vegna veirunnar, eða um 60 prósent verslana. Þar sem verslanir hafi opnað á ný hafa viðskiptin farið hægt af stað.

Samdráttur í sölu í verslunum H&M eftir löndum (í tilkynningu frá H&M segir ekkert um verslanir H&M á Íslandi):

  • Þýskaland -46 prósent
  • Bandaríkin -71 prósent
  • Bretland -60 prósent
  • Frakkland -71 prósent
  • Svíþjóð -31 prósent
  • Kína -32 prósent
  • Ítalía -80 prósent
  • Spánn -76 prósent
  • Rússland -47 prósent
  • Pólland -59 prósent
  • Japan -58 prósent
  • Noregur -36 prósent
  • Danmörk -51 prósent
  • Finnland -49 prósent
  • Suður-Kórea -11 prósent




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×