Makamál

Handjárna-tímabilið er hafið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Samkvæmt dagatali Handjárna-tímabilsins er október kallaður prófunar-tímabilið þar sem við eigum fyrstu stefnumótin og reynum að máta hvaða einstaklingar passa okkur.
Samkvæmt dagatali Handjárna-tímabilsins er október kallaður prófunar-tímabilið þar sem við eigum fyrstu stefnumótin og reynum að máta hvaða einstaklingar passa okkur. Getty
Þegar talað er um The Cuffing season eða Handjárna-tímabilið er auðvelt að álykta að það sé verið að tala um eitthvað kynferðislegt, ekki satt?

En hver er hin raunverulega skilgreining á The cuffing season?

Samkvæmt Urban dictonary er skilgreiningin þessi: 

Yfir haust og vetrarmánuðina finnur  fólk sem að öllu jöfnu kýs frekar að vera einhleypt aukna þrá í að bindast einhverjum, fara í samband. Kaldara veður og meiri innivera verður oft til þess að fólk finnur fyrir einmanaleika og þar af leiðandi eykst þörfin í það að komast í nýtt samband og tengjast annari manneskju. 

Yfir sumartímann virðist fólki þó líða betur með það að vera einhleypt. Veðrið er betra, ferðlög og mannfögnuðir taka yfir og félagslífið yfirleitt í blóma. Sagt er að Handjárna-tímabilið byrji fyrst 1. ágúst og standi til 14. febrúar (Valentínusardag).

Á samfélagsmiðlum hefur mikið færst í aukana að fólk vísi í þetta tímabil og hefur til gamans svokallað dagatal Handjárna-tímabilsins gengið manna á milli þar sem mánuðurnir eru skilgreindir eftir ákveðnum stigum. 

1. Njósna-tímabilið (Scouting) - 1. - 31. ágúst. 

Í ágúst fer fólk að horfa í kringum sig og skoða hverjir eru einhleypir og gætu mögulega komið til greina.

2. Sigti-tímabilið (Drafting) - 1. - 30. september.

Leitin þrengist of fólk byrjar að sigta úr þá einstaklinga sem vekja mestan áhuga.

3. Reynslu-tímabilið (Tryouts) - 1. - 31. október.

Fyrstu stefnumótin eða hittingar. Á þessu tímabili lætur fólk á það reyna að hittast og finna hvort að það sé eitthvað til staðar. Sumir hitta nokkra á meðan aðrir prófa nokkur stefnumót með einum aðila.

4. Fortímabilið (PreSeason) - 1. - 30. nóvember.

Nú er fólk búið að finna einhvern einn og yfirleitt einkennist þetta tímabil af spennu og tilhlökkun. Stefnumótin verða fleiri og kynnin nánari. 

5. Handjárna-tímabilið (Cuffing season) - 1. desember - 15. janúar.

Það er svo ekki fyrr en í desember að handjárnatímabilið verður raunverulegt. Þetta er mánuðurinn sem fólk hefur hvað sterkustu löngunina í að binda sig. Þráin verður hvað mest í að eiga einhvern til þess að deila með þessum oft frekar fjölskyldumiðaða mánuði.

6. Úrslita-tímabilið (Playoffs) - 16. janúar - 13. febrúar. 

Um miðjan janúar tekur hversdagsleikinn aftur við og margir hverjir komnir yfir mestu spennuna í sambandinu. Þá reynir meira á það hvernig fólk passar saman.

7. Lokaúrslitin  (The Championship game) - 14. febrúar.

VALENTÍNUSARDAGURINN!

Ef sambandið kemst í gegnum miðjan febrúar er sagt að þú sért hólpinn. Sambandið komst áfram í næstu lotu. 

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast ítarlegri umfjöllun Guardian um The cuffing season HÉR


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×