Makamál

Matarást: Kjötmeira pasta fyrir kjötkallinn minn

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Þegar Heiða og kærasti hennar Elli ætla að gera vel við sig verður þessi réttur oftast fyrir valinu ásamt góðu rauðvíni og kósý stemmningu.
Þegar Heiða og kærasti hennar Elli ætla að gera vel við sig verður þessi réttur oftast fyrir valinu ásamt góðu rauðvíni og kósý stemmningu. Vilhelm Gunnarsson

 

Þegar ég spurði Ella hvað væri það besta sem ég eldaði fyrir hann þá var hann ekki lengi að svara og sagði: „Beikon pastað!“

Þetta segir fitness-drottningin og einkaþjálfarinn Aðalheiður Ýr Óladóttir eða Heiða eins og hún er oftast kölluð. Heiða er fyrsti viðmælandi Makamála í viðtalsliðnum Matarást.

„Þó að Elli segi nú oft við mig að allt sem ég geri sé gott þá er þessi réttur búinn að vera í uppáhaldi síðustu tvö ár en uppskriftin þróaðist þegar ég var ólétt og varð sjúk í pasta. Ég fór þá að hugsa hvernig ég gæti gert kjötmeira pasta fyrir kjötkallinn minn.“

Litla stráknum okkar, Óla, þykir pastað líka alveg rosalega gott og erum við búin að halda nokkur matarboð þar sem vinir og fjölskylda hafa hreinlega pantað þennan rétt.

„Ég hef prófað nokkrar útfærslur af þessum rétt, stundum nota ég beikon, kjúkling og skinku og stundum bara beikon og skinku. Það er líka mjög gott að setja pepperoni ef þið fílið það og nota þá pepperoníost í sósuna.“

En hér kemur svona eðalútgáfan sem okkur finnst best:

Tortellini með karamelluðu beikoni og rjómaostasósu

Uppskrift:

  • 2 bakkar af tortellini með skinkufyllingu. Finnst best að nota þessi fersku sem eru geymd í kæli í búðunum.
  • 1 pakki beikon.
  • 2 kjúklingabringur (má sleppa).
  • ½-1 pakki skinka.
  • 1 bakki sveppir.
  • 2 kryddostar með beikoni og papriku frá Örnu.
  • ½ lítri af rjóma. Ég nota Örnu rjóma.
  • 1 tsk kjötkraftur.
  • Dass af Sukrin gold púðursykri eða venjulegum sykri. 

 

 

 Aðferð: 

  • Hitið ofninn í 200 gráður.
  • Tortellini sett í pott og soðið eftir leiðbeiningum.
  • Beikoni raðað á ofnplötu með smjörpappír og púðursykri stráð yfir. Það er líka hægt að nota sýróp eða bæði. Bakað þar til það verður stökkt eða eftir ykkar smekk.
  • Skerið sveppi niður og steikið á pönnu.
  • Skerið kjúklingabringur í smáa bita. Kryddaðar með salt og pipar eða öðru góðu kjúklingakryddi og steiktar á pönnu.
  • Skerið skinku niður í smáa bita.
  • Skerið ostinn í smáa bita og setjið í pott ásamt rjómanum og hitið saman. Bætið 1 tsk kjötkrafti saman við.
  • Blandið svo öllu saman og ef þið eruð fyrir grænmeti með þá er gott að setja litla kirsjuberjatómata eða rauða papriku með og krydda svo smá með basilíku. 

 

Gott að bera fram með hvítlauksbrauði og nóg af parmesanost.

Vilhelm Gunnarsson

Makamál þakka Heiðu kærlega fyrir að deila þessari uppskrift með okkur og fyrir þá sem vilja fylgjast betur með Heiðu þá er hægt að nálgast Instagram prófílinn hennar hér. 


Tengdar fréttir

Góða nótt kossinn lifir enn

Samkvæmt niðurstöðum úr könnun Makamála segjast langflestir lesenda Vísis sem eru í sambandi næstum alltaf kyssa makann sinn góða nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×