Gæddi sér á snakki eftir endurkomuna sögulegu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2019 23:00 Williams leggur boltann ofan í körfuna án þess að Kevin Durant komi vörnum við. vísir/getty
Þrátt fyrir að lenda mest 31 stigi undir vann Los Angeles Clippers magnaðan sigur á meisturum Golden State Warriors, 131-135, í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1. Vinna þarf fjóra leiki til að komast áfram í næstu umferð. Sigur Clippers var sögulegur en aldrei hefur lið komið til baka og unnið eftir að hafa lent jafn mörgum stigum undir í leik í úrslitakeppni NBA. Þetta er jafnframt mesta endurkoma í sögu Clippers. Lou Williams átti frábæran leik fyrir Clippers í nótt. Hann skoraði 36 stig og gaf ellefu stoðsendingar. Tólf stiganna komu í 4. leikhluta sem Clippers vann, 41-23. Eftir sigurinn ótrúlega gæddi Williams sér á snakki á meðan hann hékk í símanum. Clippers birti skemmtilega mynd af þessum hófstillta fagnaði skotbakvarðarins á Twitter.*completes largest comeback in franchise history* *grabs snacks* *checks @Twitter*@TeamLou23 | #ClipperNationpic.twitter.com/HwEPi8y6CB — LA Clippers (@LAClippers) April 16, 2019 Þrátt fyrir að byrja nánast undantekningarlaust á bekknum er Williams stigahæsti leikmaður Clippers á tímabilinu með 20,0 stig að meðaltali í leik. Hann er einnig með 3,0 fráköst og 5,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Williams þykir mjög líklegur til að vera valinn besti sjötti leikmaður NBA-deildarinnar. Hann fékk þau verðlaun 2015 og 2018.
NBA Tengdar fréttir Ævintýraleg endurkoma Clippers gegn meisturunum | Myndband LA Clippers er búið að jafna metin í rimmunni á móti meisturum Golden State. 16. apríl 2019 07:30 Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Ævintýraleg endurkoma Clippers gegn meisturunum | Myndband LA Clippers er búið að jafna metin í rimmunni á móti meisturum Golden State. 16. apríl 2019 07:30