Isavia var heimilt að hamla för flugvélar WOW air frá Keflavíkurflugvelli, sem er í eigu flugvélaleigufyrirtækisins ALC, og nota hana sem tryggingu fyrir greiðslu þeirra gjalda sem flugfélagið skuldaði Isavia. Landsréttur komst að þessari niðurstöðu í dag og staðfesti þar með úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá því í byrjun mánaðar.
Oddur Ástráðsson lögmaður ALC segir að fyrirtækið líti svo á að Isavia megi þannig halda flugvélinni, TF-GPA, fyrir allri skuld WOW air við Isavia, sem nemur tveimur milljörðum króna. ALC þurfi því að reiða fram milljarðana til að losa þotuna.
Landsréttur tók þó ekki afstöðu til þess hvort Isavia eigi kröfu á hendur ALC um greiðslu þeirra gjalda sem WOW air stofnaði til gagnvart Isavia. Þá var ekki heldur tekin afstaða til þess hvaða gjöld ALC þurfi að greiða eða setja tryggingu fyrir til þess að þvingunarúrræði verði létt af flugvélinni.
Oddur segir niðurstöðu Landsréttar vonbrigði og koma verulega á óvart. Verið sé að skoða að óska eftir kæruleyfi Hæstaréttar.
Isavia kyrrsetti vélina við gjaldþrot WOW air 28. mars síðastliðinn. Héraðsdómur Reykjaness komst svo að þeirri niðurstöðu í byrjun maí að Isavia hafi verið heimilt að hamla för flugvélarinnar frá Keflavíkurflugvelli á meðan gjöld tengd þeirri flugvél eru ógreidd, en ekki vegna ógreiddra annarra gjalda WOW air við Isavia vegna flugvéla í eigu þriðja aðila.
ALC greiddi Isavia 87 milljóna króna skuld vegna vélarinnar sjálfrar í kjölfar uppkvaðningar úrskurðarins í héraðsdómi og krafðist þess svo að flugvélin yrði afhent. Isavia varð ekki við þeirri kröfu. Rætt verður við Sveinbjörn Indriðason, starfandi forstjóra Isavia, um úrskurð Landsréttar í kvöldfréttum Stöðvar 2.
