Viðskipti innlent

Saka lögmann ALC um dylgjur í garð stjórnenda Isavia

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vél WOW air TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá því í mars.
Vél WOW air TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá því í mars. Vísir/Vilhelm
Upplýsingafulltrúi Isavia segir að Oddur Ástráðsson, lögmaður flugvélaleigusalans ALC, nýti sér fjölmiðla til að bera á borð fullyrðingar sem ekki standist skoðun. Hann fari af stað með dylgjur í garð þeirra stjórnenda sem tekið hafi erfiðar ákvarðanir fyrir hönd Isavia vegna WOW air.

ALC og Isavia hafa að undanförnu tekist á fyrir dómstólum vegna kyrrsetningar á flugvél ALC sem WOW aur hafði á leigu. Isavia og WOW air gerðu með sér samkomulag um að ávallt yrði ein vél úr flota flugfélagsins á Keflavíkurflugvelli sem trygging fyrir skuldum WOW air við Isavia sem safnast höfðu upp.

ALC hefur haldið því fram að Isavia hafi ekki verið heimilt að kyrrsetja vélina vegna skulda WOW air. Í Viðskiptablaðinu í dag segir lögmaður ALC að það hafi vakið athygli hans að í upphaflegri greiðsluáætlun WOW air, sem undirrituð var af forstjóra WOW air, hafi ákvæðið um að ávallt skyldi ein vél WOW air vera á Keflavíkurflugvelli verið tekið út.

Þetta afhjúpaði að hans mati ásetnig og afstöðu Isavia um að stjórnendur þar hafi gert sér grein fyrir að það myndi ekki þola dagsljósið að áskilja sér tryggingu í eign þriðja aðila fyrir skuldasöfnun WOW air. 

Segir ALC hafa haft tækifæri til að afla sér upplýsinga

Í tilkynningu frá Isavia, sem undirrituð er af Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa Isavia, segir að það hafi verið að beiðni WOW Air að hafa tvö aðskilin gögn um málið. Annars vegar greiðsluáætlun og hins vegar yfirlýsingu um að ein flugvél WOW yrði ávallt á Keflavíkurflugvelli eða á leið þangað.

„Gera má ráð fyrir að lögmanni ALC sé fullkunnugt um þetta. Enn einu sinni notar hann fjölmiðla til þess að bera á borð fullyrðingar um stjórnendur Isavia sem ekki standast skoðun. Farið er af stað með dylgjur í garð þeirra sem tóku erfiðar ákvarðanir um rekstur Isavia – ákvarðanir sem teknar voru á viðskiptalegum forsendum með hag Isavia að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.

Er því einnig vísað á bug að ALC hafi ekki verið upplýst um stöðu mála vegna flugvélarinnar og bendir Isavia á að í leigusamningi ALC við WOW Air sé meðal annars að finna ákvæði þar sem kveðið er á um hvernig haga skuli málum ef flugvél ALC yrði kyrrsett vegna notendagjalda á flugvelli.

Þá segir einnig í tilkynningunni að Isavia standi ekki í vegi fyrir því að afhending vélarinnar fari fram gegn fullnægjandi tryggingu.

„[S]vo sem eins og bankatryggingu, með fyrirvara um lögmæti kröfunnar. Síðan mætti takast á um ágreininginn fyrir dómstólum. Það er ákvörðun leigusalans að fara ekki þá leið.“ 

Tekist á um málið fyrir dómstólum

Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að Isavia hefði verið heimilt að kyrrsetja vélina vegna 87 milljóna króna skuld WOW air við Isavia vegna vélarinnar. WOW air varð gjaldþrota þann 28. mars en flugfélagið skuldaði Isavia um 2,5 milljarða króna.

Isavia hefur neitað að afhenda ALC vélina vegna milljarðanna tveggja og kærði úrskurð héraðsdóms í síðustu viku til Landsréttar. Telur Isavia að dómafordæmi hafi ekki verið virt í úrskurðinum. Í úrskurðinum sagði að Isavia mætti ekki kyrrsetja þotuna vegna allra skulda WOW air heldur aðeins vegna þessarar tilteknu vélar.

ALC hefur greitt hina 87 milljón króna skuld og farið fram á að flugvélin verði afhent og lagt fram aðfararbeiðni þess efnis. Isavia hefur mótmælt aðfararbeiðninni á þeim forsendum að málið sé til meðferðar hjá Landsrétti.


Tengdar fréttir

Stjórnvöld vildu ekki valda gjaldþroti WOW air

Stjórnvöld vildu ekki hrinda af stað þeirri atburðarrás að WOW air færi í gjaldþrot að sögn fjármálaráðherra. Það sé slæmt ef tveggja milljarða króna krafa Isavia gagnvart WOW sé töpuð en þó beri að líta til þeirra tekna sem félagið skapaði á meðan það fékk gálgafrest hjá Isavia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×