Þau Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir og Aron Gauti Sigurðarson bera grænkeralífsstílnum fagurt vitni. Á vef þeirra, grænkerar.is, má finna ýmislegt vegan góðgæti. Meðal annars það sem gæti átt heima á veisluborði fermingarbarnsins.
Karamelluostakaka
Botn
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
6 ferskar döðlur, muna að taka steinana úr
2 tsk. kókosolía, bragð- og lyktarlaus
Salt
Setjið hneturnar í matvinnsluvél og blandið þar til þær eru nokkuð fínmalaðar.
Bætið döðlum, kókosolíu og salti út í og blandið þar til deigið festist saman.
Leggið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi. Þrýstið deiginu vel niður í formið svo það þeki allan botninn.
Geymið botninn í kæli meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
3 dl kasjúhnetur
8 ferskar döðlur, muna að taka steinana úr
½ dl hlynsíróp, má vera minna ef vill
1 dl kókosolía
1 dl rjómaostur, t.d. Oatly-smurosturinn
2 dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. sítrónusafi
Salt
3 dl vatn
1 tsk. agar-agar-duft
Kælið kókosmjólkina en þá skilur hún sig og þykki hlutinn situr efst en þunnur vökvi neðst.
Setjið vatn og agar-agar-duft í pott og hitið að suðu.
Setjið hin hráefnin í matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt. Þetta getur tekið nokkrar mínútur.
Hellið næst agar-agar-blöndunni út í og blandið áfram í smástund.
Hellið fyllingunni yfir botninn og geymið í kæli meðan karamellukremið er útbúið.
Karamellukrem
½ dl hlynsíróp
½ dl kókossykur eða hrásykur
½ dl kókosolía
1½ dl kókosmjólk í dós, þykki hlutinn
1 tsk. vanilludropar
salt
Setjið öll hráefnin í pott og sjóðið í um 10-15 mín. þar til karamellan hefur dökknað og þykknað. Gott er að setja örlítið af karamellunni í glas og inn í frysti til að athuga hversu stíf hún er orðin.
Smyrjið karamellukreminu yfir fyllinguna og skreytið að vild, ég notaði saxaðar pekanhnetur..

Jarðarberjaostakaka
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
8 medjool-döðlur, steinarnir teknir úr
1 tsk. kókosolía, bragð- og lyktarlaus
1 tsk. vanilludropar
Salt
Setjið möndlur og pekanhnetur í matvinnsluvél og malið í um 20 sek.
Bætið hinum hráefnunum út í og látið matvinnsluvélina ganga þar til deigið festist saman.
Leggið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi og smyrjið hliðarnar með olíu.
Þrýstið deiginu vel niður í formið svo það þeki allan botninn.
Geymið botninn í kæli meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
3 dl kasjúhnetur, ásamt u.þ.b. einum dl vatni
2 dl kókosolía, bragð- og lyktarlaus, bráðin
4 dl fersk jarðarber
1 dl vegan rjómaostur, t.d. frá Oatly
¾-1 dl hlynsíróp
1 msk. vanilludropar
¾ dl sítrónusafi
Börkur af hálfri sítrónu
Salt
Setjið kasjúhnetur, vatn og bráðna kókosolíu í matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt.
Bætið afganginum af hráefnunum út í og blandið vel.
Hellið fyllingunni yfir botninn. Ég ákvað að skera jarðarber í helminga og raða þeim með fram kantinum á forminu áður en ég hellti fyllingunni yfir.
Geymið kökuna í frysti þar til hún stífnar eða í kæli yfir nótt.
Eftir að kakan er stífnuð má taka hana úr forminu og skreyta að vild, t.d. með ferskum berjum.

Mexíkóskar vefjur
1 dós vegan rjómaostur, t.d. Oatly
1 dós vegan sýrður rjómi, t.d. Oatly
8 cm púrrulaukur
2-3 litríkar paprikur
2 avókadó
1 dós svartbaunir, skola vel
2 dl gular baunir, skola vel
1 tsk. sítrónusafi
1 lúka ferskt kóríander
Salt og pipar
Mexíkósk kryddblanda, eftir smekk
6 tortillavefjur
Skerið púrrulauk, paprikur og avókadó smátt niður.
Skolið svartbaunirnar og gulu baunirnar í sigti.
Blandið öllum hráefnunum saman í stóra skál og smakkið til með kryddum.
Smyrjið blöndunni á tortillakökurnar og rúllið upp í vefjur.
Setjið vefjurnar í lokað fat og geymið í ísskáp yfir nótt. Skerið þær síðan niður í um 2 cm þykkar sneiðar daginn eftir og raðið á stóran disk. Sniðugt getur verið að stilla þeim upp á rönd og stinga tannstöngli í.

Avókadó hrákaka
1½ dl möndlur
3 dl ristaðar kókosflögur
8-10 medjool-döðlur, steinarnir teknir úr
1-2 tsk. kókosolía, bragð- og lyktarlaus
Salt
Setjið möndlur og ristaðar kókosflögur í matvinnsluvél og malið í um 20 sek.
Bætið hinum hráefnunum út í og látið matvinnsluvélina ganga þar til deigið festist saman.
Leggið smjörpappír í botninn á hringlaga smelluformi og smyrjið hliðarnar með olíu.
Geymið botninn í kæli meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
5-6 avókadó, fallega græn og fersk
6 límónur (lime), safinn kreistur úr þeim
2 dl kókosolía, bragð- og lyktarlaus
¾-1 dl hlynsíróp
1 tsk. vanilla, eða vanilludropar
Salt
Börkur af einni límónu
Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og blandið þar til silkimjúkt. Gott er að geyma hluta af hlynsírópinu og límónusafanum og hella varlega út í blandarann þar til sætt og súrt hefur náð jafnvægi.
Hellið fyllingunni yfir botninn.
Geymið kökuna í frysti þar til hún stífnar eða í kæli yfir nótt.
Eftir að kakan er stífnuð má taka hana úr forminu og skreyta að vild, t.d. með límónuberki eða kókosflögum