Viðskipti innlent

Ljóst fyrir áramót hvort Icelandair velji Airbus

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Starfshlutfall hjá um fimmtungi flugmanna hjá Icelandair verður lækkað niður í fimmtíu prósent í fjóra mánuði. Aðgerðir flugfélagsins koma til vegna kyrrsetningar Boeing 737-MAX flugvélanna. Forstjóri félagsins segir ekki liggja fyrir hvenær eða hversu háar bætur félagið muni fá frá Boeing en að viðræður séu í gangi.

Breytingarnar taka gildi fyrsta desember næstkomandi og standa til fyrsta apríl á næsta ári. Aðgerðirnar ná til um hundrað og fimmtíu flugmanna, en hundrað og ellefu þeirra fá skert starfshlutfall og þrjátíu flugstjórar færast niður í stöðu flugmanns.

Kyrrsetning MAX flugvélanna hefur haft mikil áhrif á rekstur Icelandair en upphaflega gerði flugfélagi ráð fyrir níu slíkum vélum í flota sínum á þessu ári.

Eruð þið að fara sjá fyrir endann á erfiðleikunum vegna Max-vélanna?

„Við vonumst til þess og reiknum með því að MAX-vélarnar verði farnar að fljúga í byrjun næsta árs, í janúar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

Áttu að hefja þjálfun á MAX vélarnar eftir áramót

Kyrrsetningin MAX-vélanna felur einnig í sér óvissu um afhendingu fimm nýrra MAX-véla sem áttu að koma snemma á næsta ári. Hluti þeirra flugmanna sem átti að fljúga þeim átti að hefja æfingar eftir áramót.

„Þetta er ekki skemmtilegt að tilkynna okkar starfsfólki um þessar breytingar sem við vorum að gera núna en við áttum fund áðan og hljóðið var bærilegt,“ segir Bogi og bætir við að flugmenn Icelandair hafi sýnt mikla tryggð við félagið þegar verr árar eins og nú og vonast til að missa þá ekki frá sér vegna breytinganna.

Bogi segir einnig að ekki sé ljóst hversu háar bætur Boeing muni greiða Icelandair vegna kyrrsetningar MAX-vélanna eða hvenær þær komi til greiðslu. Viðræður þess efnis fara fram þessa daganna. Einnig er það til skoðunar að langtímafloti félagsins verði jafnvel undir merkjum Airbus.

„Við höfum átt í viðræðum við Airbus og Boeing varðandi langtíma flota félagsins og þær viðræður standa þannig að við stefnum að því að taka ákvörðun fyrir lok þessa ársfjórðungs en auðvitað hefur þetta svokallaða MAX-mál áhrif á þetta verkefni líka,“ segir Bogi.


Tengdar fréttir

111 flugmenn Icelandair færðir í hálft starf

Kyrrsetning Boeing 737-MAX flugvéla Icelandair veldur því að flugfélagið þarf að hátt í 150 flugmenn þurfa ýmist að fara í hálft starf hjá félaginu eða fara út hlutverki flugstjóra í starf flugmanns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×