Valur sló bikarmeistarana úr leik Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. janúar 2019 22:12 Heather Butler var atkvæðamest Valskvenna í kvöld vísir/vilhelm
Valskonur gerðu sér lítið fyrir og slógu tvöfalda bikarmeistara Keflavíkur úr leik í 8-liða úrslitum Geysisbikars kvenna í körfubolta í kvöld. Valur var með tveggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta í Keflavík í kvöld en Valskonur komu sér upp þægilegu 11 stiga forskoti fyrir hálfleikinn, staðan var 28-39 þegar flautað var til hálfleiks. Bilið breikkaði svo bara í þriðja leikhluta og Keflavík náði aldrei að koma með almennilegt áhlaup. Þegar upp var staðið vann Valur mjög öruggan 71-89 sigur. Heather Butler var stigahæst í liði Vals með 23 stig og Helena Sverrisdóttir bætti 17 við. Brittanny Dinkins setti 39 stig fyrir Keflavík og var þeirra langbesti leikmaður. Breiðablik gengur lítið í Domino's deildinni en Blikar áttu ekki í vandræðum með 1. deildar lið ÍR í Smáranum. ÍR skoraði aðeins 17 stig í fyrri hálfleik og var staðan orðin 35-17 þegar gengið var til búningsherbergja. ÍR náði að halda nokkuð vel við Blika í þriðja leikhluta en heimakonur keyrðu aftur á gestina í síðasta fjórðungnum og unnu 36 stiga sigur 80-44. Ivory Crawford skoraði 24 stig fyrir Breiðablik og Ragnheiður Björk Einarsdóttir setti 10. Hjá ÍR var Birna Eiríksdóttir stigahæst með 12 stig. Þá er orðið ljóst hvaða lið mæta í úrslitavikuna í Laugardalshöllinni í febrúar, það verða Breiðablik, Valur, Snæfell og Stjarnan. Dregið verður í undanúrslitin í næstu viku.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Íslenski boltinn „Mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ Íslenski boltinn Látinn eftir höfuðhögg í leik Enski boltinn Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums Golf „Erfitt að kveðja allt fólkið í Krikanum“ Fótbolti „Þetta var bara draumi líkast“ Handbolti „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ Handbolti Dagskráin í dag: Ryder-bikarinn fer af stað Sport Busquets stígur niður af sviðinu Fótbolti „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Handbolti Fleiri fréttir Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Sjá meira