Erlent

Kínverjar skutu stórri eldflaug út í geim eftir vandræði í tvö ár

Samúel Karl Ólason skrifar
Kínverjar hafa þó lent í miklum vandræðum með flaugina og var skotið í dag það fyrsta sem heppnaðist að fullu.
Kínverjar hafa þó lent í miklum vandræðum með flaugina og var skotið í dag það fyrsta sem heppnaðist að fullu. Vísir/CNSA

Síðasta geimskot áratugarins heppnaðist þegar Kínverjar skutu hinni stóru Long March 5 eldflaug á loft í dag. LM5 er stærsta eldflaug Kína og getur borið 20 tonn af farmi á braut um jörðina. Kínverjar hafa þó lent í miklum vandræðum með flaugina og var skotið í dag það fyrsta sem heppnaðist að fullu.

Þá skutu Kínverjar mun fleiri eldflaugum út í geim á árinu en önnur ríki, eða 34, samkvæmt frétt Forbes.



Eldflaugin ferjaði nýja gerð samkiptagervihnattar út í geim en sá gervihnöttur, Shijian 20, á að svífa yfir Kína og er hann sagður innihalda framúrskarandi tækni og vera gríðarlega stór. Samkvæmt frétt South China Morning Post er vænghaf gervihnattarins, þegar búið er að dreifa úr sólarrafhlöðum hans, rúmir 40 metrar.



Það er meira en vænghaf Boeing 737.

Meðal annars ætla Kínverjar að nota LM5 til að byggja geimstöð á braut um jörðu og senda geimför til tunglsins og Mars á næsta ári.

Síðast var reynt að skjóta LM5 eldflaug á loft árið 2017 en þá bilaði eldflaugin og féll hún í Kyrrahafið. Síðan þá hafa vísindamenn Geimvísindstofnunar Kína (CNSA) unnið hörðum höndum að því að laga galla eldflauganna.

Á undanförnum árum hafa Kínverjar náð gífurlegum árangri varðandi geimferðir en þeir hafa nýverið svift hulunni af hlutum áætlana þeirra með því markmiði að leita eftir samstarfi varðandi alþjóðleg verkefni.

Sjá einnig: Kínverjar leitast eftir alþjóðlegu samstarfi í geimnum



Það hefur þó ekki borið mikinn árangur. Yfirvöld Bandaríkjanna hafa til dæmis bannað mest allt samstarf með Kínverjum á sviði geimvísinda af ótta við leka leynilegra gagna. Meðal annars hefur Kínverjum verið meinað að koma að Alþjóðlegu geimstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×