Ólafur Bjarki spilar líklega á Íslandi á næsta tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2019 16:20 Ólafur Bjarki Ragnarsson í leik með West Wien. Getty/ Ewald Rauscher
Olís deildin gæti verið að fá feitan bita heim á næstu leiktíð samkvæmt heimildum Íþróttadeildar Sýnar. Ólafur Bjarki Ragnarsson, sem leikið hefur með West Wien í Austurríki síðastliðinn tvö ár, mun í sumar snúa heim til Íslands og væntanlega finna sér íslenskt lið til að spila með. Ólafur Bjarki hefur leikið í Þýskalandi og átti sæti í íslenska landsliðinu í handbolta en meiðsli settu þar strik í reikninginn hjá þessum öfluga leikstjórnanda sem sló í gegn þegar HK varð Íslandsmeistari öllum að óvörum árið 2012. Ólafur Bjarki skoraði 33 mörk í 6 leikjum með HK í úrslitakeppninni 2012 þegar liðið vann alla sex leiki sína en hann var þá næstmarkahæstur í liðinu á eftir Bjarka Má Elíssyni. Ólafur Bjarki hefur spilað 34 landsleiki fyrir Ísland en hann var var í hópnum á EM í Serbíu 2012. Ólafur Bjarki verður 31 árs gamall í sumar en hann lék með þýsku liðunum TV Emsdetten og ThSV Eisenach á fimm árum sínum í Þýskalandi en hefur leikið í Austurríki frá 2017. Ólafur Bjarki hefur skorað 41 mark í 13 leikjum með West Wien í austurrísku deildinni á þessu tímabili.
Olís-deild karla Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Sport Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Íslenski boltinn Eir og Ísold mæta á EM Sport Fleiri fréttir Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Sjá meira