Gott að fá Harry Kane til baka eða ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2019 17:00 Harry Kane. Getty/Christopher Lee
Markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar tvö af síðustu þremur tímabilum hefur ekki lífgað upp á leik Tottenham þegar hann snéri til baka úr meiðslum. Þvert á móti gengi liðsins hefur hrunið eftir endurkomu Harry Kane. Tottenham tapaði 2-1 á móti Southampton um helgina þrátt fyrir að komast í 1-0 og vera með forystuna fram á lokakafla leiksins. Nú er liðið dottið út úr allra titilbaráttu og það sem meira er að liðin fyrir neðan eru komin hættulega nálægt. Tottenham er enn í þriðja sæti en nú bara einu stigi frá fjórða sætinu og þremur stigum frá fimmta sætinu. Frekara basl gæti kostað Spurs liðið sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Tottenham var búið að vinna fjóra deildarleiki í röð þegar enski landsliðsframherjinn Harry Kane snéri til baka úr meiðslum. Fjórum leikjum síðar hefur aðeins eitt stig bæst við stigafjölda Tottenham í deildinni. Harry Kane hefur reyndar skorað í þremur af þessum fjórum leikjum en bestu úrslitin er 1-1 jafntefli á móti Arsenal þar sem Arsenal liðið klikkaði á vítaspyrnu í lokin. Hinir þrír leikirnir hafa tapast á móti Burnley, Chelsea og Southampton. Tvö af þeim eru í fallbaráttu deildarinnar eða Burnley og Southampton.Tottenham's Premier League form since Harry Kane's return: 0 wins 1 draw 3 losses #THFCpic.twitter.com/kyZ7WMziRt — LiveScore (@livescore) March 11, 2019Harry Kane meiddist á ökkla í 1-0 tapi á móti Manchester United 13. janúar. Hann var frá keppni þar til 23. febrúar. Á meðan spilaði Tottenham fjóra leiki og þeir unnust allir. 2-1 sigur á Fulham, 2-1 sigur á Watford, 1-0 sigur á Newcastle og 3-1 sigur á Leicester. Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-min skoraði í þremur leikjanna þar á meðal sigurmarkið á móti Newcastle. Harry Kane fór beint inn í byrjunarliðið og spilaði við hlið Son Heung-min. Í leikjunum á undan var Son við hlið spænska framherjans Fernando Llorente. Það er kannski erfitt að gagnrýna leikmann sem hefur skorað öll mörk Tottenham í síðustu fjórum deildarleikjum en úrslitin með eitt stig í húsi af tólf mögulegum tala sínu máli.
Enski boltinn Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Íslenski boltinn „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Fótbolti „Akkúrat núna þá gæti mér ekki verið meira sama“ Sport Fleiri fréttir Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Sjá meira