Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Grafnar rjúpur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vísir/Árni

Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 

Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Grafnar rjúpur má finna í uppskrift dagsins. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Klippa: Grafnar rjúpur - Aðventumolar Árna í Árdal

Innihald

Grafnar rjúpur

4 rjúpnabringur

50 grömm sjávarsalt

10 grömm sykur

1 teskeið möluð fimm piparblanda

3 matskeiðar villibráðakrydd

Krækiberjasósa

100 grömm krækiber

50 grömm púðursykur

1 teskeið villibráðakrydd

Leiðbeiningar

  1. Grafnar rjúpur - Þerrið rjúpnabringurnar. Blandið salti og sykri saman í lítilli skál og stráið helmingnum í botninn á grunnu fati. Leggið rjúpnabringurnar ofan á saltblönduna og stráið restinni af saltblöndunni yfir. Leggið bökunarpappír ofan á bringurnar. Setjið annað minna fat ofan á bringurnar og fergið með nokkrum niðursuðudósum. Látið standa í kæli í um 5 klukkustundir eða eftir smekk en ég við að þær séu enn dálítið hráar í miðjunni.

  2.  Skolið saltið af þeim undir rennandi köldu vatni og þerrið vel. Blandið piparblöndu og villibráðakryddinu saman í grunnu fati. Veltið bringunum upp úr kryddblöndunni og geymið í loftþéttu íláti inni í ísskáp. Látið standa yfir nótt. Skerið bringurnar í örþunnar sneiðar og berið fram.

  3. Krækiberjasósa - Setjið krækiberin og púðursykurinn í lítinn pott. Hitið yfir miðlungsháum hita þar til sykurinn er bráðnaður og berin byrjuð að springa. Maukið berin með töfrasprota og síið síðan sósuna í gegnum sigti. Hreinsið pottinn og setjið sósuna aftur í ásamt kryddunum. Látið sósuna malla þar til hún hefur þykknað töluvert. Setji í loftþétta krukku og látið kólna. Berið fram með gröfnu rjúpunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×