Meistararnir fengið á sig næstflest mörk og með slökustu markvörsluna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2019 15:30 Grímur Hergeirsson tók við þjálfun Selfoss fyrir tímabilið. vísir/vilhelm
Þegar 14 umferðum er lokið í Olís-deild karla hefur aðeins eitt lið fengið á sig fleiri mörk en Íslandsmeistarar Selfoss. Þá er Selfoss með slökustu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni. Ekkert lið hefur hins vegar skorað fleiri mörk að meðaltali í leik en meistararnir. Selfoss tapaði fyrir Val á heimavelli í gær, 31-33. Þetta er í áttunda sinn í vetur sem Selfyssingar fá á sig 30 mörk eða meira í leik. Selfoss hefur fengið á sig 30,5 mörk að meðaltali í leik á tímabilinu. Aðeins nýliðar Fjölnis, sem eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar, hafa fengið á sig fleiri mörk, eða 30,6. Á síðasta tímabili fékk Selfoss á sig 26,3 mörk að meðaltali í leik en tveggja af sterkustu varnarmönnum liðsins í fyrra nýtur ekki lengur við. Elvar Örn Jónsson fór til Skjern í sumar og þá sleit Sverrir Pálsson krossband í hné. Markvarslan er einnig lakari en á síðasta tímabili. Í vetur eru markverðir Selfoss aðeins með 26,7% hlutfallsmarkvörslu að meðaltali í leik. Fjölnir og KA eru með næstslökustu markvörsluna, 27,8%, samkvæmt HB Statz. Á síðasta tímabili, bæði í deild og úrslitakeppni, var markvarsla Selfyssinga 30,1%. Selfyssingar geta þó lítið kvartað yfir sóknarleiknum það sem af er tímabili. Þeir hafa skorað mest í deildinni, 30,8 mörk að meðaltali í leik, og eru með bestu skotnýtinguna, 63,6%. Selfoss er í 5. sæti deildarinnar með 17 stig, sex stigum á eftir toppliði Hauka. Einar Baldvin Baldvinsson hefur ekki náð sér á strik í marki Selfoss.vísir/vilhelm Flest mörk á sig að meðaltali: Fjölnir - 30,6 Selfoss - 30,5 HK - 29,4 KA - 28,9 ÍR - 27,9 FH - 27,7 Stjarnan - 27,1 ÍBV - 26,8 Fram - 26,1 Afturelding - 25,6 Haukar - 25,4 Valur - 23,8 Slakasta hlutfallsmarkvarslan: Selfoss - 26,7% Fjölnir - 27,8% KA - 27,8% ÍBV - 29,3% Stjarnan - 29,4% HK - 30,8% Fram - 31,1% Afturelding - 31,7% FH - 32,1% ÍR - 34,8% Haukar - 35,7% Valur - 36,4%
Olís-deild karla Tengdar fréttir Segir Hauk betri en Óli Stef, Aron og Kristján voru á hans aldri Guðjón Guðmundsson hrósaði Hauki Þrastarsyni í hástert eftir leik Selfoss og Vals. 16. desember 2019 14:00 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Segir Hauk betri en Óli Stef, Aron og Kristján voru á hans aldri Guðjón Guðmundsson hrósaði Hauki Þrastarsyni í hástert eftir leik Selfoss og Vals. 16. desember 2019 14:00