Bloomberg færist nær forsetaframboði Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. nóvember 2019 21:15 Michael Bloomberg, auðkýfingur og fyrrverandi borgarstjóri New York. AP/John Locher
Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg hefur skilað inn tilskyldum gögnum sem þarf til þess að bjóða sig fram í forkosningum demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári. Starfsmaður hans segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram eða ekki. Bloomberg hefur að undanförnu gefið frá sér ýmis skilaboð að hann muni bjóða sig fram í forkosningunum þar sem nærri tuttugu frambjóðendur berjast um útnefningu demókrata. Það að hann hafi skilað inn gögnum þýðir að hann má byrja að safna pening til stuðnings framboði hans en á vef Reuters er haft eftir starfsmanni Bloomberg að lokaákvörðun um framboð hafi ekki verið tekin. Bloomberg var borgarstjóri New York á árunum 2002 til 2013. Talið er líklegt að muni hann bjóða sig fram muni hann sleppa því að taka þátt í nokkrum af fyrstu forkosningunum sem haldnar verða, en þar hafa mögulegur mótframbjóðendur hans eytt mánuðum í kosningabaráttu. Þess í stað er talið líklegt að Bloomberg einbeiti sér að öðrum ríkjum og hefur hann þegar uppfyllt kröfur sem þarf til þess að skrá sig í forkosningarnar sem haldnar verða í Alabama, Arkansas, Texas, Georgíu og Michigan. Ástæðan fyrir áhuga Bloomberg á forsetaframboði hefur sögð verið sú að hann telji núverandi frambjóðendur Demókrata ekki líklega til að geta lagt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í forsetakosningunum á næsta ári. Fyrstu forkosningar demókrata fara fram í Iowa þann 3. febrúar á næsta ári.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Bloomberg stefnir á forsetaframboð Auðkýfingurinn Michael Bloomberg ætlar mögulega að sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna. 7. nóvember 2019 23:00 Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira
Bloomberg stefnir á forsetaframboð Auðkýfingurinn Michael Bloomberg ætlar mögulega að sækjast eftir tilnefningu Demókrataflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna. 7. nóvember 2019 23:00