Jól

Jólin mikil vinnutörn hjá Svölu

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Svala segist sjálf ekki vera sérstaklega mikið jólabarn, enda lítill tími til þess í slíkri vinnutörn sem desember er.
Svala segist sjálf ekki vera sérstaklega mikið jólabarn, enda lítill tími til þess í slíkri vinnutörn sem desember er. Mummi Lú
Það er alltaf nóg að gera hjá Svölu Björgvins­dóttur í kringum jólin. Hún segist ekki vera mikið jólabarn sjálf en ætlar þó að vera með fallegt jólatré í ár fyrir fimm ára stjúpson sinn. 

Það er í nógu að snúast þessa dagana hjá Svölu Björgvinsdóttur söngkonu. Jólin eru að nálgast með sína vinnutörn en í ár tekur hún ekki bara þátt í fjölda jólatónleika heldur ákvað hún að opna líka fyrir minni gigg á borð við jólahlaðborð fyrirtækja.

Byrjaði um síðustu helgi

„Það er mjög mikið að gera, ég byrjaði törnina um síðustu helgi, en þá spilaði ég á nokkrum jólahlaðborðum. Þetta er í fyrsta skipti sem ég ákveð að taka svona jólahlaðborðum, en ég tók fjögur þannig um síðustu helgi og það var bara mjög gaman. Ég er bara ein með píanóleikara, það er aðeins lágstemmdara og meiri nánd á þannig tónleikum,“ segir Svala.

„Ég verð svo með á fimm tónleikum í Salnum í Kópavogi, þar kem ég fram með þeim Friðriki Ómari, Diddú og Jógvan. Þeir tónleikar heita Heima um jólin. Svo verð ég auðvitað á Jólagestum í Eldborg,“ segir Svala en faðir hennar Björgvin er að sjálfsögðu maðurinn á bak við þá.

Af nógu að taka

Heima um jólin heldur síðan norður og verða fimm tónleikar í Hofi á Akureyri.

„Ég er líka að taka að mér aðeins öðruvísi og minni gigg. Ég syng til að mynda við Nova-skautasvellið á Ingólfstorgi.“

Nú fyrr í mánuðinum gáfu Friðrik Ómar og Svala út lagið Annríki í desember og í fyrra gaf hún út jólalagið Sex með Baggalúti. Það er því af nógu að taka hjá henni þegar það kemur að jólalögum, en hún segist alltaf taka sín klassísku jólalög. En hvert er uppáhaldslagið hennar Svölu?

„Það heitir Driving Home for Christmas og er með Chris Rea. Það er eitt af mínum uppáhaldsjólalögum, en er eiginlega ekkert svo jólalegt. Það er bara ótrúlega flott lag sem ég hef alltaf haldið upp á. Ég hef samt sjálf aldrei tekið það, maður þarf eiginlega að vera karlmaður með smá hrjúfa rödd til að syngja það almennilega, smá svona viskírödd,“ segir Svala og hlær. „Ég elska þetta lag. En svo fíla ég líka svona „cheesy“ lög á borð við Last Christmas með Wham! Það er svo mikil nostalgía sem fylgir þeim.“

Ekki mikið jólabarn

Það stendur ekki á svörum þegar Svala er innt eftir því hvaða jólalag henni sjálfri finnst skemmtilegast að syngja.

„Ég syng mjög oft Þú komst með jólin til mín, sem pabbi og Ruth Reginalds gerðu á sínum tíma. Mér finnst mjög gaman að syngja það og svo er það líka svo flott lag. Maður hefur sungið svo mikið af lögum. Ég hef sungið líka Happy Xmas (War is Over) með John Lennon, ég held mikið upp á það,“ segir Svala.

Sjálf segist hún ekki vera sérstaklega mikið jólabarn, enda hefur þetta oft verið sá tími árs sem er hvað mest að gera hjá henni og mikil vinnutörn. Hún fái því oft ekki tækifæri til að slaka á fyrr en á aðfangadag sjálfan.

„Æ, verða allir fyrir vonbrigðum að heyra að ég sé ekki sérstaklega mikið jólabarn? Ég er ekkert í því að skreyta neitt sérstaklega mikið. Ég var meira jólabarn þegar ég var krakki. Þá elskaði ég jólin. Eftir því sem ég varð eldri þá minnkaði það, ég vinn svo mikið í nóvember og desember, og hef gert síðastliðin 13-14 ár. Svo fer ég bara í mitt jólaskap á sjálfan aðfangadag, því ég er líka að syngja á Þorláksmessu, þá kem ég fram á Litlu jólum Björgvins í Bæjarbíói. En á aðfangadag er ég bara að borða góðan mat, sofa og að vera með fjölskyldunni. Það eru mín jól, samveran með fjölskyldunni,“ segir Svala.

Jólatré fyrir stjúpsoninn

Eins og áður kom fram er Svala ekki mikið í því að skreyta, þótt henni finnist æðislegt að annað fólk geri það. Í ár verður þó undantekning á, því Svala stefnir á að vera með fallegt jólatré.

„Ég er ekki persónulega mikið fyrir svona skraut en ég ætla samt að setja upp jólatré í ár því ég á stjúpson sem er fimm ára. Ég vil endilega að hann sé líka með lítið tré hérna, þannig að mig langar að gera smá jólalegt fyrir hann.“

Í janúar og febrúar ætlar Svala svo að henda sér af fullum krafti í það að klára næstu plötu.

„Stefnan er að klára hana og koma henni svolítið af stað. Þannig að eftir áramót er ég svolítið að fara að leggjast undir feld og gera nýja músík. Þetta eru oft rólegustu mánuðirnir, þannig að ég ákvað að taka þá bara í að gera þetta. Ég hef verið svo mikið að spila undanfarið að ég hef ekkert komist í þetta, en núna er ég á leið í stúdíóið,“ segir Svala.



×