Jól

Jólaþorpið opnað í næstu viku

Elín Albertsdóttir skrifar
Mikill fjöldi gesta mætir venjulega þegar jólaþorpið er opnað.
Mikill fjöldi gesta mætir venjulega þegar jólaþorpið er opnað.
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað í fjórtánda skipti í næstu viku, 25. nóvember, en það var fyrst sett upp jólin 2003. Um leið verður kveikt á jólatrénu á Thorsplani. Jólaþorpið verður síðan opið allar helgar á aðventunni og margt skemmtilegt í boði fyrir börn og fullorðna.

Að sögn Árdísar Ármannsdóttur, samskiptastjóra Hafnarfjarðarbæjar, komust færri að en vildu í sölubásana en þeir eru sautján. Einnig verða núna spennandi matarvagnar á svæðinu.

„Við verðum með metnaðarfulla dagskrá og fjöldi skemmtikrafta kemur fram. Það verður söngur, leikur og alls kyns sprell í gangi,“ segir Árdís.

Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðar.
„Þegar jólaþorpið verður opnað í næstu viku verður skipulögð dagskrá frá kl. 18-20 þar sem Felix Bergsson heldur uppi jólafjöri. Hann og Sigrún Þorleifsdóttir, Dúna í blómabúðinni Burkna, kveikja á jólatrénu og telja niður með gestum á fyrsta degi Jólaþorpsins. Dúna hefur í fjölda ára rekið Burkna sem dætur hennar hafa nú tekið við. Hún er mikið jólabarn og var ein þeirra fyrstu til að byrja að skreyta verslun sína í Hafnarfirðinum. Það þótti því mjög viðeigandi að fá sjálft jólabarnið með okkur í niðurtalningu og það að kveikja á trénu. Jólasveinar verða á svæðinu og flugeldasýning,“ segir Árdís.

„Jólasveinar og Grýla verða á vappi um miðbæinn þegar jólaþorpið er opið, Jólafía og Jólálfur frá Sirkus Íslands mæta einnig á svæðið, Skjóða skemmtir og svo verður harmóníkuleikur og söngatriði. Hestakerra keyrir um Strandgötuna og geta kátir krakkar að sjálfsögðu fengið far þannig að nóg verður um að vera í Hafnarfirðinum til jóla.“

Jólaþorpið er byggt upp eins frá ári til árs en skemmtidagskráin breytist. Jólaþorpið er vettvangur lista, handverks og hönnunar svo vel er hægt að finna fallegar gjafir í jólapakkann. Flestar vörurnar eru íslenskar.

Ýmislegt fallegt er til sölu í jólaþorpinu.
„Jólaþorpið er orðið landsþekkt og fólk hvaðan­æva af landinu kemur að heimsækja okkur í Hafnar­fjörðinn á aðventunni. Hafnfirðingar sjálfir eru líka farnir að nýta tækifærið og bjóða heim í kaffi og kökur á aðventuhelgunum og bjóða fjölskyldu og vinum að ganga svo með sér í bæinn, fara í jólaþorpið, kíkja í búðir og í Hafnarborg á listsýningu og jafnvel setjast niður á einu af notalegu kaffihúsunum okkar. Jólaþorpið er líka sótt af erlendum ferðamönnum sem vilja komast í kynni við heimilislega hátíð og jólagleði þannig að hátíðin er farin að teygja anga sína ansi víða,“ segir Árdís.

Í jólaþorpinu er hægt að kaupa heitt kakó en kaffihúsum hefur fjölgað í Hafnarfirði og þar er hægt að fá gott kaffi .

Dagskrá hverrar helgar er hægt að sjá á Facebook-síðu jólaþorpsins og heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.

Margrét Arnardóttir leikur hér á harmóníku í jólaþorpinu.





×