Viðskipti erlent

Yfir­maður peninga­þvættis­deildar DNB sagði upp störfum í haust

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Norski bankinn DNB lokaði á viðskipti við félag tengt Samherja í maí í fyrra vegna gruns um að félagið væri notað til að stunda peningaþvætti.
Norski bankinn DNB lokaði á viðskipti við félag tengt Samherja í maí í fyrra vegna gruns um að félagið væri notað til að stunda peningaþvætti. Vísir/EPA
Roar Østby, sem var yfirmaður peningaþvættisdeildar norska bankans DNS, sagði upp störfum í haust. Annar starfsmaður deildarinnar, Hege Hagen, fékk stöðuhækkun og tók við sem yfirmaður.

Frá þessu er greint á vef norska viðskiptamiðilsins Dagens Næringsliv en eins og fram kom í umfjöllun Stundarinnar um Samherjaskjölin í liðinni viku lokaði DNB á viðskipti við félag tengt Samherja í maí í fyrra vegna gruns um að félagið væri notað til að stunda peningaþvætti.

Upplýsingafulltrúi DNB, Thomas Midteide, þvertekur fyrir að starfslok Østby tengist máli Samherja hjá bankanum. Hann hafi sjálfur óskað eftir því að láta af störfum eftir mörg ár í peningaþvættisdeildinni.

Í frétt Stundarinnar segir hins vegar að það sé ljóst að DNB hafi haft upplýsingar um Samherjamálið þegar Østby ákvað að segja upp störfum í haust.

9,1 milljarður króna í gegnum félagið

Fyrrnefnt félag, Cape Cod FS, sem DNB lokaði á viðskipti við var staðsett á Marshall-eyjum. Bankinn lokaði á viðskiptin vegna þess að hann taldi óvíst hvert raunverulegt eignarhald félagsins væri. Þar af leiðandi væri grunur um að félagið væri notað til að þvætta peninga.

Alls fóru 9,1 milljarður króna í gegnum Cape Cod FS en Samherji notaði það til að greiða laun sjómanna fyrirtækisins í Afríku frá árinu 2010.

Félög Samherja millifærðu fjármunina inn á reikninga félagsins og var sama upphæð svo millifærð af reikningunum.

Að því er segir í frétt Stundarinnar voru millifærslurnar af reikningunum aðallega launagreiðslur til Austur-Evrópubúa. Alls lokaði DNB fimm bankareikningum vegna hættu á verið væri að þvætta peninga í gegnum þá.

Í frétt Dagens Næringsliv er fundið að því að bankinn hafi ekki tilkynnt um brotthvarf Østby  og að nýr yfirmaður hafi tekið við peningaþvættisdeildinni með stuttum fyrirvara. Er upplýsingafulltrúi DNB spurður út í hvers vegna þetta hafi ekki verið tilkynnt.

„Við auglýsum svona venjulega ekki í fjölmiðlum. Það eru yfir 1000 millistjórnendur hjá DNB. Fjármálaeftirlitinu og öðrum viðeigandi yfirvöldum hefur auðvitað verið tilkynnt um þetta,“ segir Midteide.

Fram kemur í frétt Dagens Næringsliv að Østby hafi ekki svarað fyrirspurnum miðilsins vegna málsins.


Tengdar fréttir

Samherjamálið skref fyrir skref

Samherjaskjölin sem birt voru á vef WikiLeaks í gær, og voru til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi og í dagblaðinu Stundinni, hafa vakið mikla athygli – og gríðarleg viðbrögð í íslensku samfélagi.

Norðmenn fjalla um þátt DNB í Samherjamálinu

Samherjamálið hefur vakið mikla athygli í Noregi. Fjölmiðlar í landinu hafa undanfarna daga fjallað um ásakanir um að Samherji hafi greitt mútur í gegnum norska ríkisbankann DNB.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×