Kane hetja tíu Tottenham-manna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kane skorar sigurmark Tottenham.
Kane skorar sigurmark Tottenham. vísir/getty
Þrátt fyrir að vera manni færri í rúman klukkutíma vann Tottenham 2-1 sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Tanguy Ndombele kom Spurs yfir á 24. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Sjö mínútum síðar fékk Serge Aurier, hægri bakvörður Tottenham, sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Á 39. mínútu jafnaði Danny Ings eftir skelfileg mistök Hugo Lloris í marki Tottenham. Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Harry Kane sigurmark Tottenham.

Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Burnley gerði 2-2 jafntefli við nýliða Aston Villa á Villa Park. Burnley er í 10. sæti deildarinnar en Villa í því átjánda.

Anwar El-Ghazi og John McGinn skoruðu mörk Villa en Jay Rodriguez og Chris Wood mörk Burnley.

Wolves vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Watford að velli, 2-0. 

Matt Doherty og Daryl Janmaat (sjálfsmark) skoruðu mörk Úlfanna sem eru komnir upp í 13. sæti deildarinnar. Watford er á botninum með aðeins tvö stig.

Luka Milivojevic (víti) og Andros Townsend skoruðu mörk Crystal Palace í 2-0 sigri á Norwich City á Selhurst Park. Palace er í 9. sæti deildarinnar en Norwich í því sautjánda.

Þá gerðu Bournemouth og West Ham United jafntefli, 2-2, á Vitaly-vellinum. Joshua King og Callum Wilson skoruðu mörk Bournemouth og Andriy Yarmolenko og Aaron Cresswell mörk West Ham sem er í 3. sæti deildarinnar. Bournemouth er í 7. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira