Viðskipti innlent

Bíllausir fá ódýrari klippingu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eyrún Guðmundsdóttir eigandi hárgreiðslustofunnar Skuggafall.
Eyrún Guðmundsdóttir eigandi hárgreiðslustofunnar Skuggafall. Vísir/Vilhelm
„Mig langaði að umbuna fólki fyrir að taka strætó, hjóla eða labba í stað þess að keyra til okkar,“ segir Eyrún Guðmundsdóttir eigandi Skuggafall hárgreiðslustofu í Hafnarfirði.

Tilkynnt var á samfélagsmiðlum stofunnar í gær að hér eftir fá viðskiptavinir afslátt á mánudögum ef þeir nota vistvænan ferðamáta þegar þeir koma í klippingu. Á svokölluðum „grænum mánudögum“ er 20 prósent afsláttur af klippingu fyrir þá sem ganga, hjóla eða ferðast með strætisvagni.

„Við höfum prófað þetta áður og viðbrögðin voru svo góð að við ákváðum að gera þetta varanlegt,“ útskýrir Eyrún. Hárgreiðslustofan var opnuð í júlí á þessu ári og var það alltaf markmið Eyrúnar að reyna að gera það með umhverfisvænum hætti.

„Við keyptum húsgögn sem eru gerð úr endurunnum efnum. Við notum líka hárvörur frá Davines sem eru einstaklega umhverfisvænar.“

Viðskiptavinir mæta með tóma brúsa

Eyrún segir að viðskiptavinir geti fengið pappírspoka undir vörurnar sem þeir kaupa, en prentar ekki út kvittanir nema að fólk óski sérstaklega eftir því. Svo reynir hún að hvetja fólk til þess að fylla á hárvörurnar sínar í stað þess að kaupa alltaf nýjar umbúðir í hvert skipti sem þær klárast.

Eyrún er ánægð með viðbrögðin og vonar að í framtíðinni komi enginn akandi til þeirra í klippingu á mánudögum. Vísir/Vilhelm
„Við bjóðum viðskiptavinum upp á að taka með sér sitt eigið ílát og kaupa þannig sjampó og aðrar hárvörur umbúðalaust,“ segir Eyrún. Að hennar mati ættu enn fleiri fyrirtæki að taka þetta skref.

„Við erum langt á eftir. Í öðrum löndum hefur svo lengi verið hægt að koma með eigið ílát til þess að kaupa hveiti, sykur, kjöt og fleira í verslunum.“

Það var auðvelt fyrir Eyrúnu að finna húsgögn og vörur í takt við þá umhverfisvænu stefnu sem hún hafði sett sér og fyrirtækinu. Það er þó ýmislegt sem þyrfti að bæta.

„Mér finnst að það mætti vera auðveldara fyrir lítil fyrirtæki að flokka sorpið ítarlega. Ég flokka allt sér, meira að segja hárið.“

Eyrún hvetur aðrar hárgreiðslustofur til að bjóða upp á svona umhverfisafslátt en segist alls ekki vera að setja út á að aðrir geri of lítið. Það sé ekki rétta lausnin að predika yfir öðrum heldur sé betra að hvetja aðra áfram með því að taka sjálfur umhverfisvæn skref í rétta átt.

„Viðskiptavinir hafa tekið ótrúlega vel í þetta hjá okkur. Margt smátt gerir eitt stórt.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×