Viðskipti innlent

Þaulskipulagður þjófnaður og full ástæða til að hafa varann á

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Ásgeir Margeirsson er forstjóri HS Orku.
Ásgeir Margeirsson er forstjóri HS Orku. Fréttablaðið/ANTON BRINK
Erlendum tölvuþrjótum tókst nýverið að svíkja tæplega fjögur hundruð milljónir króna út úr HS Orku. Forstjóri fyrirtækisins segir að um þaulskipulagaðan glæp hafi verið að ræða. Þrátt fyrir að væntanlega verði hægt að endurheimta þorra upphæðarinnar segir forstjórann fulla ástæðu til að hafa varann á.

Starfsfólki HS Orku varð fyrir nokkrum vikum ljóst að brotist hefði verið inn í tölvukerfi félagsins og fjármunir sviknir út. Greint var frá málinu í Fréttablaðinu í dag og jafnframt að nú sé unnið bæði með lögregluyfirvöldum hér á landi og erlendis til þess að reyna að endurheimta fjármunina, sem blaðið segir nema á fjórða hundrað milljóna króna.

HS Orka rekur tvö jarðvarmaver sem eru annars vegar í Svartsengi og hins vegar á Reykjanesi. Fyrirtækið er í eigu einkaaðila sem eru bæði íslenskir og útlenskir.

Sjá einnig: Hundruðum milljóna stolið af HS Orku

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku vill lítið upplýsa um það á þessari stundu hvernig þjófarnir athöfnuðu sig við ránið, því um sé að ræða lögreglumál. Það hafi þó verið starfsmenn HS Orku sem hafi áttað sig á svikunum.

Hann segir að farið hafi verið yfir verkferla fyrirtækisins til að tryggja að svona geti ekki komið fyrir aftur. Aukinheldur hafi snögg viðbrögð starfsmanna orðið til þess að hægt hefur verið að endurheimta „töluverðan hluta“ fjármunanna. Aðspurður um hvað það þýðir, hvort það geti talist meira en helmingur upphæðarinnar, segir Ásgeir einfaldlega: „Væntanlega“

„Þetta er þaulskipulagt. Mjög útfært og í gegnum þetta ferli höfum við orðið þess áskynja að þetta er mun algengara en maður áður hélt,“ segir Ásgeir Margeirsson.

„Það er full ástæða til að hafa varann á og búa um verkferla og kerfi með þeim hætti að svona lagað geti ekki gerst eins og kostur er.“


Tengdar fréttir

Hundruðum milljóna stolið af HS Orku

Tölvuþrjótar brutust inn í tölvukerfi HS Orku og sviku út greiðslu sem nemur á fjórða hundrað milljóna. Væntingar um að hægt sé að endurheimta stóran hluta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×