Makamál

Emojional: Brynja Dan, mamma númer eitt, tvö og tíu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Brynja Dan er einn af eigendum X
Brynja Dan er einn af eigendum X
Brynja Dan hefur komið víða við og kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að markaðsmálum. Hún er menntuð í rekstrarverkfræði en segist sjálf vera algjört markaðsnörd. Brynja hefur haft í mörgu að snúast síðustu vikur en hún er einn eiganda Extraloppunnar í Smáralind sem opnaði núna í sumar.

Þegar Makamál spurðu hvernig væri best að titla hana segist hún númer eitt tvö og tíu vera mamma. 

Hún lýsir sjálfri sér sem nörd og töffara með sterka réttlætiskennd.

En annars er ég bara hér til að reyna að gera eitthvað gott, og láta gott af mér leiða í þessu lífi. Trúi því svo innilega að það þýði ekki að óska sér neins heldur að maður þurfi að vinna fyrir því.

Makamál tóku létt spjall við Brynju á Facebook þar sem hún fékk að spreyta sig á svörum einungis í formi emojis (táknmynda).

Sjáum hversu emojional Bryna Dan er. 

Makamál þakka Brynju kærlega fyrir spjallið og óska henni góðs gengis í búðarrekstrinum. 


Tengdar fréttir

Þriðjungur hefur stundað kynlíf með fleiri en einum í einu

Í spurningu síðustu viku spurðum við að því hvort fólk hafi stundað kynlíf með fleiri en einum í einu. Að sænga hjá tveimur manneskjum eða fleiri í einu er eitt af algengum fantasíum en ætli það séu margir sem láti þessa fantasíu verða að veruleika?

Sönn íslensk makamál: Upphleypt og einhleyp

Í síðasta pistli mínum minntist ég aðeins á útlit og svokallaða útlitsbrenglun. Flest okkar tengja við einhvers konar óöryggi varðandi útlit á vissum tímabilum í lífi okkar. Hvað er það sem breytist varðandi sjálfsímyndina þína þegar þú verður einhleypur eftir mörg ár í sambandi? Það sem gerðist hjá mér er að ég varð óörugg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×