Makamál

Þriðjungur hefur stundað kynlíf með fleiri en einum í einu

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Tæplega 60% hafa eða langa til að sofa hjá fleiri en einni manneskju í einu ef marka má nýja könnun Makamála.
Tæplega 60% hafa eða langa til að sofa hjá fleiri en einni manneskju í einu ef marka má nýja könnun Makamála.
Í spurningu síðustu viku spurðum við að því hvort fólk hafi stundað kynlíf með fleiri en einum í einu.

Að sænga hjá tveimur manneskjum eða fleiri í einu er eitt af algengum fantasíum en ætli það séu margir sem láti þessa fantasíu verða að veruleika?

Ef marka má niðurstöður úr könnun Makamála þar sem yfir 3000 manns svöruðu spurningunni má draga þá ályktun að einn af hverjum þremur hafi stundað kynlíf með fleiri en einni manneskju í einu.

Tæplega 60% svarenda segjast því annað hvort hafa eða langa að stunda kynlíf með fleiri en einum í einu.

Á stefnumótaforritinu Tinder er ekki óalgengt að pör séu saman þar inni í leit að manneskju til að fá með í kynlífið. Þegar fólk er í sambandi og langar til að opna á þann möguleika að fá aðra manneskju inn í kynlífið gæti það mögulega skapað flækjur eða óöryggi. Það er því mjög mikilvægt að ræða vel saman áður en ákvörðunin er tekin og hafa öll mörk skýr. 

Grundvallaratriði er að sambandið sé örugglega á góðum stað og það sé mikið traust á milli fólks. 



Hér er hægt að sjá nákvæmari niðurstöður: 

Hefur þú sofið hjá tveimur í einu (eða fleiri)?



Já - 33%

Nei - 43%

Nei, en langar að prófa -24%

Makamál mættu í Brennsluna á FM957 síðasta föstudag en hægt er að hlusta á umræður um niðurstöðurnar ásamt kynningu á næstu spurningu vikunnar hér  fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Sönn íslensk makamál: Upphleypt og einhleyp

Í síðasta pistli mínum minntist ég aðeins á útlit og svokallaða útlitsbrenglun. Flest okkar tengja við einhvers konar óöryggi varðandi útlit á vissum tímabilum í lífi okkar. Hvað er það sem breytist varðandi sjálfsímyndina þína þegar þú verður einhleypur eftir mörg ár í sambandi? Það sem gerðist hjá mér er að ég varð óörugg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×