Viðskipti innlent

Almennir kröfuhafar í þrotabú WOW air fá ekki krónu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Ekki verður tekin afstaða til almennra krafna í þrotabú WOW air þar sem forgangskröfur í þrotabúið eru of háar. Skiptastjóri telur líklegt að ágreiningur um kröfur í búið muni enda fyrir dómstólum. Þetta kom fram á fyrsta skiptafundi WOW air sem var haldinn í dag með helstu kröfuhöfum.

Eftir að kröfur voru innkallaðar var fyrsti skiptafundur haldinn með helstu kröfuhöfum í dag.

„Við fórum yfir það að það er verið að vinna á fullu í kröfuskránni og að afgreiða þessa bunka af forgangskröfum áfram til Ábyrgðarsjóðs launa,“ sagði Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri í þrotabúi WOW air.

Á fundinum var kröfuhöfum gerð grein fyrir því að afstaða væri ekki tekin til almennra krafna þar sem forgangskröfur í búið væru það háar.

En fást almennar kröfur greiddar að einhverju leyti eða munu forgangskröfur tæma búið?

„Mér sýnist staðan vera sú að við eigum í fullu fangi með að greiða upp í forgangskröfur,“ sagði Sveinn Andri.

Í skýrslu skiptastjóra kemur fram að fjárfestingafélagið Títan, sem er að fullu í eigu Skúla Mogensen og heldur utan um eignarhlut hans í WOW air, hafi hafnað kröfu skiptastjóra um að endurgreiða þrotabúi flugfélagsins tæpar 108 milljónir.

Málið varðar kaup WOW air á hlutaféi sem Títan átti í fraktflutningafélaginu Cargo Express. Samningurinn var gerður í júní í fyrra.

Skiptastjórar eru með viðskiptin til skoðunar þar sem WOW air greiddi Títan tæpar 108 milljónir króna þremur mánuðum fyrir umsaminn gjalddaga og sjö vikum fyrir gjaldþrot WOW air.

Sveinn segir ágreining vera um einhverjar kröfur sem gæti endað fyrir dómstólum.

„Já, alveg án efa. Þetta eru sex þúsund kröfur og forgangskröfurnar eru einnig kröfur utan Skipta. Þarna er ágreiningur um sem vonandi leysist að mestu en ef ekki þá gera lögin ráð fyrir því að skiptastjórar vísi slíkum kröfum til úrlausnar hjá Héraðsdómi ef ekki næst sátt,“ sagði Sveinn Andri.

Þá kom það fram á fundinum að þóknun skiptastjóranna tveggja og fulltrúa þeirra nemi 33.3 milljónum króna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×