Innlent

Hvalirnir fljót­lega á bak og burt þegar björgunar­fólk bar að garði

Sylvía Hall skrifar
Björgunarsveitir hafa áður þurft að grípa til aðgerða vegna grindhvala, síðast í Kolgrafafirði sumarið 2018.
Björgunarsveitir hafa áður þurft að grípa til aðgerða vegna grindhvala, síðast í Kolgrafafirði sumarið 2018. Vísir/Vilhelm
Allar björgunarsveitir á Reykjanesi voru kallaðar út upp úr klukkan níu í kvöld þegar grindhvalavaða hafði komið sér fyrir í Keflavíkurhöfn. Óstaðfestar tölur segja að um þrettán hvalir hafi verið í höfninni, en þeir héldu sig í miðri höfninni.

Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, voru komnir tveir bátar á flot. Þegar fyrsti báturinn var kominn á flot um tíuleytið í kvöld sást ekki lengur til hvalanna og hafa þeir ekki sést síðan. Stuttu fyrir ellefu voru því allar björgunarsveitir afturkallaðar.

Hann segir verkefninu lokið af hálfu Landsbjargar sem stendur en mögulegt er hvalirnir snúi aftur. Ekki er vitað hvort hvalirnir hafi fælst frá þegar fyrsti báturinn var settur á flot eða þeir horfið frá af sjálfsdáðum.

„Í raun og veru þurftu björgunarsveitirnar ekkert að gera, það kom aldrei til þess að reka þá í burtu,“ segir Davíð í samtali við Vísi.

Dæmi um að vöður snúi aftur

Fyrr í vikunni var greint frá því að miklu magni af makríl hafði verið mokað upp úr höfninni en makrílvertíðin á Reykjanesi hófst mun fyrr en venjulega í ár. Hægt sé að rekja það til þess að sjávarhitinn er um tveimur gráðum hærri nú en í venjulegu árferði. Davíð segir það vera mögulega skýringu á veru hvalanna í höfninni.

„Menn vilja mögulega vera að tengja þetta saman, að grindhvalirnir hafi verið að elta hann uppi. Þeir gætu alveg eins komið aftur.“

Björgunarsveitin hefur áður þurft að bregðast við vegna hvala sem sjást við strendur Íslands. Síðasta sumar þurftu björgunarsveitir að bregðast við vegna grindhvalavöðu í Kolgrafafirði sem sneri aftur þrátt fyrir að búið væri að fæla þær í burtu.

„Það er mögulega hægt að segja það að þetta sé orðin ný sérhæfing hjá björgunarsveitum að reka hvali. Menn á Suðurnesjum voru fljótir að hringja í kollega sína á Snæfellsnesi að fá góð ráð því þeir voru náttúrulega á kafi í þessu í fyrra í nokkra daga,“ segir Davíð að lokum. 


Tengdar fréttir

Grindhvalavaða festist í Kolgrafafirði

Fyrr í dag festist grindhvalavaða í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi, björgunarsveitir voru kallaðir til og loks tókst að koma hvölunum út á haf.

Hvers vegna villast grindhvalir upp að landi?

Það er sjaldgæft að grindhvalavaða villist upp að ströndum lands, líkt og gerðist undan ströndum Njarðvíkur í gær. Það hefur gerst um það bil á tíu ára fresti hér við land að sögn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. Þá eiga dýrin það til að synda upp í fjöru og festast. Ekki er vitað hvað veldur þessari hegðun en ýmsar kenningar hafa verið settar fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×