Viðskipti erlent

Alan Turing heiðraður á breskum peningaseðlum

Kjartan Kjartansson skrifar
Svona gæti nýi fimmtíu punda seðillinn með ásjónu Turing litið út. Seðillinn verður síðasti pappírsseðillinn sem skipt verður út fyrir plastseðla.
Svona gæti nýi fimmtíu punda seðillinn með ásjónu Turing litið út. Seðillinn verður síðasti pappírsseðillinn sem skipt verður út fyrir plastseðla. Vísir/EPA
Seðlabanki Englands hefur tilkynnt að Alan Turing, frumkvöðull í tölvunarfræði og hetja Bretlands úr síðari heimsstyrjöldinni, verði á fimmtíu punda peningaseðli sem gefinn verður út árið 2021. Turing leysti dulmál nasista í stríðinu en sætti ofsóknum yfirvalda í heimalandinu vegna kynhneigðar sinnar.

Ákveðið hafði verið að andlit vísindamanns myndi skreyta fimmtíu punda seðilinn. Hafði Turing betur gegn öðrum þekktum breskum vísindamönnum eins og Rosalind Franklind, William Herschel og Stephen Hawking, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Turing hefur stundum verið nefndur faðir tölvunarfræðinnar. Lék hann lykilhlutverk í þróun fyrstu tölvanna. Þá er talið að hann hafi bjargað þúsundum mannslífa með því að leysa dulmál sem þýski sjóherinn notaði í síðari heimsstyrjöldinni og skipum bandamanna þannig frá því að verða þýskum kafbátum að bráð.

Örlög Turing eftir stríð voru þó ömurleg. Árið 1952 var hann dæmdur fyrir „gróf velsæmisbrot“ vegna þess að hann var samkynhneigður. Bresk yfirvöld vönuðu Turing með lyfjagjöf. Hann stytti sér aldur tveimur árum síðar.

Bresk stjórnvöld báðust formlega afsökunar á meðferðinni á Turing árið 2009 og var hann náðaður af drottningunni árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×