Innlent

Fyrrverandi starfs­maður á vel­ferðar­sviði Reykja­víkur­borgar nauðgaði fyrrum stjúp­dóttur sinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Maðurinn starfaði um tíma sem skólasálfræðingur og var kærður vegna starfa sinna þar. Lögregla taldi á sínum tíma ekki ástæðu til að ákæra manninn. Hann greindi velferðarsviði borgarinnar ekki frá kærunni þegar hann réð sig þangað.
Maðurinn starfaði um tíma sem skólasálfræðingur og var kærður vegna starfa sinna þar. Lögregla taldi á sínum tíma ekki ástæðu til að ákæra manninn. Hann greindi velferðarsviði borgarinnar ekki frá kærunni þegar hann réð sig þangað. Vísir/Rakel
Fyrrverandi starfsmaður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, karlmaður á sextugsaldri, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fyrrum stjúpdóttur sinni. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku.

Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa brotið á fyrrum stjúpdóttur sinni eftir að hafa boðið henni í mat. Strauk hann henni innan og utan klæða, klóraði og strauk rassi hennar og setti fingur í endaþarm. Þá kyssti hann hana blautum kossi á enni, kinn og læri áður en hann lagðist þétt upp að henni svo hún fann fyrir kynfærum hans við rassinn.

Maðurinn hefur áður verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn barni en málið var fellt niður. Hann upplýsti Reykjavíkurborg ekki um kæruna á hendur sér þegar hann var ráðinn í starfið hjá Reykjavíkurborg í júní 2017. Hann er menntaður sálfræðingur og hefur unnið mikið með börnum, bæði á leikskóla- og grunnskólaaldri. 

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Vísir/GVA

Klóraði stúlkunni á „óþægilegum stöðum“

Það var hinn 20. desemember 2017 sem Barnavernd Reykjavíkur sendi erindi til lögreglu þar sem óskað var eftir rannsókn á því hvort maðurinn hefði brotið kynferðislega á stúlkunni sem var á barnsaldri. Maðurinn var sambýlismaður móður stúlkunnar um nokkurra ára skeið.



Stúlkan lýsti því í viðtölum í Barnahúsi að eftir að maðurinn og barnsmóðirin skildu að skiptum hefði maðurinn komið skringilega fram við sig. Það hefði gerst í svokölluðu pabbahelgum. Hann hefði farið að tala við hana eins og hún væri fullorðin, eins og kærasta. Kysst hana blautum kossum.

Nánar aðspurð um hvar maðurinn kyssti hana svaraði hún því til að hann kyssti hana á ennið og kinnina og stundum á höfuðið „eins og venjulegir pabbar gera“. Þá klóraði hann henni skringilega á bakinu sem henni þætti óþægilegt og „óþægilegum stöðum“ Nefndi hún í þeim efnum að stjúpfaðirinn fyrrverandi færði höndina gjarnan neðar og stundum yfir rass brotaþola. Þá hefði hún verið í nærbuxum og buxum.

Í eitt skipti var sálfræðingurinn einn með barni á þeim mánuðum sem hann starfaði hjá velferðarsviði borgarinnar. Velferðarsvið borgarinnar tók málið til skoðunar.vísir/vilhelm

„Hnoðaðist“ með stúlkuna

Hún lýsti því að henni liði almennt illa hjá honum, sérstaklega þegar þau væru ein saman. Hún hefði ekki þorað að segja mömmu sinni frá líðan sinni framan af. Hann tæki utan um hana eins og hún væri deig og væri að „hnoðast“ með sig, stryki fast og klóraði á bakinu. Þetta hefði aðeins gerst eftir sambandsslitin.

Þann 15. desember 2017 átti hún að fara í heimsókn en ekki viljað fara. Móðir hennar bauð henni að hringja eftir hún vildi láta sækja sig. Lýsir hún því hvernig hann hafi brotið á henni, eins og lýst var í upphafi fréttar, og það staðið yfir í um hálftíma. Hann hefði hætt þegar sonur hans kom heim. Í framhaldinu fór stúlkan heim til sín og greindi móður sinni frá því sem gerst hafði.

Maðurinn neitaði alfarið sök í málinu og sagði samskipti hans við fyrrum sjúpdóttur sína einfaldlega hafa verið eins og hefðbundin samskipti væru á milli föður og dóttur.

Koma verður í ljós hvort maðurinn ákveði að áfrýja dómnum til Landsréttar.FBL/ERNIR

Þrjár mínútur eða hálftíma ein í herberginu

Í niðurstöðu dómsins er vikið að því að framburður stúlkunnar hafi verið trúverðugur og greinargóður að teknu tilliti til aldurs og þroska. Ekki væri að sjá að skýrslan litaðist af sérstökum kala til mannsins heldur væri frásögnin einlæg og hreinskilin. Þá studdi framburður sonar mannsins sem gaf einnig til kynna að framburður mannsins stæðist ekki fyllilega. Taldist sannað að maðurinn hefði verið lengur einn inni í herbergi með fyrrvernadi sjúpdóttur sinni en hann hélt fram.

Fullyrti hann að þau hefðu verið inni í herbergi í þrjár til fimm mínútur. Sonur hans bar í skýrslutöku hjá lögreglu að þau hefðu verið um tuttugu mínútur ein í herberginu. Fyrir dómi taldi hann tímann hafa verið 10-15 mínútur. Stúlkan sjálf taldi þau hafa verið ein í herberginu í um hálftíma en þó taldi dómurinn að fyrirvara þyrfti að hafa á því mati enda tímaskyn barna ónákvæmara en fullorðinna.

Þá minnti son mannsins að faðir sinn hefði legið í rúminu hjá stúlkunni. Sjálfur sagðist maðurinn hafa setið í rúminu.

Maðurinn, sem er menntaður sálfræðingur, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi.Vísir/vilhelm

Taldi skurðaðgerð sanna sýknu

Þá kemur fram í dómnum að framburður sonar mannsins hjá lögreglu, sex vikum eftir brotið, hafi gefið sterklega til kynna að maðurinn hafi komið fram með kynferðislegum hætti gagnvart stúlkunni. Þannig lýsti drengurinn því að þegar hann gekk inn í herbergið hefði faðir hans verið að ræða á óvenjulegan hátt við stúlkuna, eins og hún væri kærastan hans. Það hefði hann ekki heyrt áður.

Honum hefði verið óglatt þegar hann kom inn í herbergið. Sonurinn breytti framburði sínum varðandi það hvort faðir hans sat eða lá í rúminu þegar hann bar vitni fyrir dómi. Dómurinn taldi þá breytingu á framburði ekki trúverðuga og lagði ekki til grundvallar niðurstöðu málsins.

Faðirinn sagði ekki hægt að leggja skýrslu sonar hjá lögreglu til grundvallar niðurstöðu málsins. Drengurinn hefði hitt stúlkuna heima hjá móður hennar áður en skýrsla var tekin af drengnum. Móðirinn hefði verið viðstödd hitting þeirra. Dómurinn féllst ekki á þetta því það væri dómsins að leggja mat á sönnunargildi vitnisburðar. Þar skipti máli að ekkert komi fram sem bendi til þess að reynt hafi verið að hafa óeðlileg áhrif á soninn.

Þá sagði maðurinn að hann hefði gengist undir skurðaðgerð tveimur dögum áður en stúlkan kom í heimsókn. Hann hefði því ekki getað brotið á henni eins og hún lýsti. Dómurinn féllst ekki á þá skýringu enda hefði hann getað ekið bíl, staðið í eldhúsi og eldað fyrir börn umræddan dag. Framburður skurðlæknis útilokaði ekki að hann hefði getað framið brotið.

Taldi dómurinn að ekki yrði véfengt með skynsamlegum rökum að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök. Hann hefði nýtt sér yfirburði gagnvart stúlkunni og traust hennar og trúnað til að beita hana ólögmætri nauðung.

Þótt hæfileg refsing tvö og hálft ár í fangelsi auk þess sem hann þarf að greiða 1,8 milljónir króna í miskabætur. Farið var fram á fjórar milljónir króna.

Ekki settur strax í leyfi

Maðurinn, sem var sem fyrr segir starfsmaður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, var ekki settur strax í leyfi frá störfum þegar hann var kærður í desember til lögreglu fyrir að brjóta kynferðislega á fyrrum stjúpdóttur sinni. 

Stofnuninni sem maðurinn starfaði fyrir var greint frá kærunni í desember. Í janúar var maðurinn færður til í starfi og í febrúar var hann svo settur í ótímabundið leyfi frá störfum. Velferðarsvið skoðar nú verkferilinn í málinu.

Þá var maðurinn kærður í október 2014 fyrir kynferðisbrot mannsins. Kærandinn var ungur maður sem var í 8. bekk í grunnskóla þar sem hinn dæmdi gegndi stöðu skólasálfræðings. 

Málið var rannsakað með hliðsjón af 1. mgr. 202. gr. hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjallar um kynferðisbrot gegn börnum. Kærandinn var skjólstæðingur sálfræðingsins þegar hann var skólasálfræðingur og áttu brotin að hafa átt sér stað um áratug áður en kæran barst.

Í kærunni kemur fram að drengurinn var látinn hitta skólasálfræðing vegna hegðunarvanda en hann er greindur með einhverfu og var lagður í einelti í grunnskóla. 

Lögregla rannsakaði málið en ríkissaksóknari taldi það ekki líklegt til sakfellingar. Síðan hefur ungi maðurinn barist fyrir endurupptöku málsins og var fallist á það í september í ljósi nýrra gagna. Er það nú á borði lögreglu.

Fyrri umfjöllun Vísis má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Kanna hvort maðurinn hafi verið einn með börnum í starfi

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar skoðar hvort afla eigi vottorða úr sakaskrá við ráðningar í öll störf á sviðinu. Ráðgjafi hjá sviðinu var kærður fyrir kynferðisbrot gegn barni í desember og hafði áður verið kærður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×