Innlent

75 ára afmæli lýðveldisins fagnað

Birna Dröfn Jónasdóttir skrifar
Almenningi býðst að heimsækja Stjórnarráðshúsið í dag.
Almenningi býðst að heimsækja Stjórnarráðshúsið í dag. FBL
Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá verður í miðborg Reykjavíkur í dag þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskráin hefst með samhljómi kirkjuklukkna í borginni klukkan korter fyrir tíu og að honum loknum, klukkan tíu, hefst guðsþjónusta í Dómkirkjunni.

Hátíðardagskrá á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst svo klukkan ellefu á Austurvelli með hefðbundnum liðum líkt og ávarpi forsætisráðherra og ávarpi fjallkonunnar. Einnig mun forseti Íslands leggja blómsveig að minnisvarða Jón Sigurðssonar og Hamrahlíðarkórinn og Lúðrasveitin Svanur munu flytja tónlist. Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, mun svo leggja blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar og eiginkonu hans, Ingibjargar Einarsdóttur.

Skrúðgöngur verða farnar bæði frá Hagatorgi og Hallgrímskirkju klukkan eitt eftir hádegi og liggur leið þeirra beggja í Hljómskálagarðinn þar sem tekur við fjölbreytt dagskrá til klukkan fimm. Þar verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna, svo sem skátaþrautir, hoppukastalar og klifurturn.

Á milli klukkan tvö og fimm verða svo stórtónleikar í Hljómskálagarðinum þar sem fram koma margar af skærustu stjörnum landsins og kynnir verður Margrét Erla Maack.

Lýðveldi Íslands er 75 ára í ár og af því tilefni verður boðið upp á köku á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn. Kakan verður 75 metra löng svo nóg ætti að vera í boði fyrir þá sem leggja leið sína þangað og má þess geta að kakan er jafn löng og hæð Hallgrímskirkjuturns. Einnig verður opnað við hátíðlega athöfn, í tilefni afmælisins, nýtt fjölskyldu- og fræðslurými á Þjóðminjasafni Íslands.

Hátíðarhöld verða víða um land í dag og má sem dæmi nefna að skemmtidagskrá verður á Rútstúni í Kópavogi klukkan 14, fjölskyldudagskrá verður á Glerártorgi á Akureyri á milli klukkan 14-16 og kvöldskemmtun verður á sama stað frá klukkan níu til miðnættis.

Í Reykjanesbæ verður skemmtidagskrá í Skrúðgarðinum á milli 14 og 16 þar sem Azra Crnac, flytur ávarp fjallkonu og á Seyðisfirði verður hátíðardagskrá í skrúðgarðinum við Seyðisfjarðarkirkju.

Nánari upplýsingar um dagskrána í höfuðborginni má finna á www.17juni.is




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×