Segja ótilgreint ríki bera ábyrgð á árás á olíuflutningaskip Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2019 08:06 Árásirnar voru gerðar 12. maí síðastliðinn og rannsakendur segja þær hafa verið afar vel skipulagðar. EPA/ALI HAIDER
Sameinuðu arabísku furstadæmin fullyrða að mestar líkur séu á því að ríki hafi fyrirskipað árásir á olíuflutningaskip undan strönd landsins á dögunum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem furstadæmin létu framkvæma og kynnt var á lokuðum fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Árásirnar voru gerðar 12. maí síðastliðinn og beindust að fjórum skipum í heildina. Rannsakendur segja þær hafa verið afar vel skipulagðar sem bendi til að ríki frekar en hryðjuverkasamtök hafi staðið þar að baki. Beindust þær einnig að skipum frá Sádi-Arabíu og Noregi. Ekki er tilgreint um hvaða ríki gæti verið að ræða en Bandaríkjamenn hafa kennt Íran um þær. Íranir þvertaka hins vegar fyrir það og hafa farið fram á að málið verði rannsakað af óvilhöllum aðila. Samkvæmt rannsókninni var árásin gerð á þann hátt að kafarar fóru að skipunum og festu á þau sprengju. Markmiðið hafi verið að valda skemmdum en ekki að sprengja skipin í loft upp.
Íran Noregur Sameinuðu arabísku furstadæmin Sameinuðu þjóðirnar Sádi-Arabía Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira