Innlent

Heið­veig tekur annan formannsslag

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Heiðveig María hefur hrist upp í Sjómannafélagi Íslands.
Heiðveig María hefur hrist upp í Sjómannafélagi Íslands. Fréttablaðið/Ernir
Heiðveig María Einarsdóttir hefur tilkynnt um framboð sitt til formanns Sjómannafélags Íslands á ný. Heiðveig bauð sig fram til formanns í félaginu síðasta haust en var framboðslistum hennar hafnað af kjörstjórn. Skömmu síðar var henni síðan vikið úr félaginu.

Félagsdómur dæmdi svo Sjómannafélagið til að greiða eina og hálfa milljón króna í ríkissjóð í sekt og Heiðveigu Maríu 750 þúsund krónur í málskostnað því hann taldi að lýðræðislegar grunnreglur stéttarfélaga hafi verið brotnar í ferlinu.

Sjómannafélagið gaf það svo út í apríl að boðað yrði til kosninga og auglýstu eftir framboðum 16. maí síðastliðinn. Heiðveig bauð þá fram lista sinn en hann skipa hátt í 30 meðlimir félagsins. Nú eru þau á fullu að safna meðmælendum með listanum en til að framboðið verði samþykkt þarf það 100 meðmælendur.

Í samtali við Fréttablaðið segir Heiðveig það vera tæpan þriðjung félagsmanna og meðmælasöfnunin sé því aðalatriðið svo að félagsmenn geti síðan valið á milli þeirra og sitjandi stjórnar í lýðræðislegum kosningum.

„Það er algjört aukaatriði fyrir okkur hverjar niðurstöður þessara kosninga verða, í mínum huga er það allavega þannig,“ segir Heiðveig. „Fyrst og fremst þarf bara að kjósa í þessu félagi og þá ertu kominn með grunn til að vinna að málefnum sjómanna samkvæmt þeim málefnum og áherslum sem það framboð leggur upp með. Þá ertu allavega kominn með lýðræðislega kjörna forystu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×