Formúla 1

„Algjör vitleysa hjá Ferrari“

Bragi Þórðarson skrifar
Vettel og Leclerc börðust um fyrsta sætið í Barein kappakstrinum.
Vettel og Leclerc börðust um fyrsta sætið í Barein kappakstrinum. vísir/getty
Þrjár keppnir eru liðnar af Formúlu 1 tímabilinu og í öllum þeirra hefur Ferrari látið annan ökumann víkja fyrir hinum.

Gerhard Berger, fyrrum ökumaður ítalska bílaframleiðandans gagnrýnir þessar liðsskipanir harðlega.

„Charles Leclerc hefur allt sem þarf til að vinna titla, það að láta hann víkja fyrir Vettel eingöngu vegna þess að Vettel hefur meiri reynslu er algjör vitleysa.“

Hinn 21 árs gamli Leclerc var látinn víkja fyrir liðsfélaga sínum í síðustu keppni er þeir sátu í þriðja og fjórða sæti. Að lokum datt Mónakóbúinn niður í fimmta sæti.

Tímabilið hefur byrjað hræðilega fyrir Ferrari sem situr nú 57 stigum á eftir Mercedes. Ferrari bílarnir virtust hafa algjöra yfirburði í prófunum fyrir tímabilið en hraðinn hefur ekki sýnt sig í keppnum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×