Viðskipti erlent

Reiknað með að forstjóri Boeing verði „grillaður“ á aðalfundi félagsins

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Dennis Muilenburg er forstjóri Boeing.
Dennis Muilenburg er forstjóri Boeing. Vísir/Getty
Aðalfundir Boeing hafa ekki verið sérstaklega fréttnæmir undanfarin ár en búist er við að breyting verði á því á morgun er aðalfundur félagsins verður haldinn í Chicago.

Búist er við að fjárfestar og fréttamenn muni fjölmenna á fundinn og krefja Dennis Muilenburg, forstjóra Boeing, um svör og skýringar við því hvernig félagið hafi brugðist við flugbanni 737 MAX-véla Boeing og tveggja mannskæðra flugslysa þar sem MAX-vélar hröpuðu til jarðar.

Boeing hefur mátt þola talsverða gagnrýni vegna kerfis sem hannað var fyrir hinar nýju MAX-vélar og var ætlað að koma í veg fyrir ofris. Svo virðist sem að kerfið og skynjarar tengdir því hafi spilað þátt í flugslysunum mannskæðu.



Í frétt Bloomberg
segir að Muilenburg meigi eiga von á því að verða „grillaður“ af fjárfestum og fréttamönnum á aðalfundinum, en forstjórinn mun einnig halda sinn fyrsta blaðamannafund sinn frá því að flugbannið var sett á.





Helgin hefur ekki verið góð fyrir Boeing fréttalega séð en CNN greindi frá því í gær að minnst fjórir starfsmenn fyrirtækisins hafi hringt í sérstaka uppljóstraralínu bandarískra flugmálayfirvalda þar sem hver sem er getur sent inn ábendingar um flugöryggi.

Komu símtölin daginn eftir að vél Ethiopian Airlines hrapaði þann 10. mar síðastliðinn. Lýstu starfsmennirnir yfir áhyggjum af hönnun MCAS-kerfisins svokallaða og skynjara tengdum því.

Þá greindi Wall Street Journal frá því í dag að Boeing hafi ekki látið Southwest Airlines, einn stærsta og mikilvægasta viðskiptavin Boeing, vita að ákveðinn öryggisbúnaður hafi verið aftengdur í hinum nýju 737 MAX vél. Eftir að MAX-vél Lion Air hrapaði á síðasta ári óskaði Southwest eftir því að öryggisbúnaðurinn yrði tengdur á ný.

Boeing vinnur nú að því að endurhanna búnað og stjórnkerfi MAX-vélanna til þess að lagfæra það sem virðist hafa farið úrskeiðis í flugslysunum tveimur. Flugsérfræðingur Bloomberg segist ekki hafa trú á öðru en að Boeing muni takast að lagfæra vandamálið, aðalslagurinn verði að endurheimta jákvætt orðspor Boeing og trú almennings á flugvélum fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur

Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur vegna stýrikerfisgalla í Boeing 737 MAX 8. Flugfélagið hefur keypt níu slíkar þotur frá Boeing en þær eru kyrrsettar sem stendur.

Þrjár MAX-vélar Icelandair safna ryki við Boeing Field

Enn er alls óvíst hvenær MAX-flugvélar bandaríska flugframleiðands Boeing frá grænt ljós á að hefja sig til lofts á ný. Óafhentar vélar hrannast nú upp við verksmiðju Boeing í grennd við Seattle.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×