Körfubolti

Af hverju eru þessir leikmenn að hætta í NBA?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade fékk væna sturtu frá liðsfélögum sínum í sjónvarpsviðtali eftir síðasta leikinn,
Dwyane Wade fékk væna sturtu frá liðsfélögum sínum í sjónvarpsviðtali eftir síðasta leikinn, Getty/Sarah Stier
Detroit Pistons varð í nótt sextánda og síðasta liðið sem tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta en lið Charlotte Hornets og Miami Heat sátu eftir. Í fyrrinótt kvöddu Dirk Nowitzki og Dwyane Wade heimafólkið sitt og í nótt sögðu þeir endanlega bless við NBA-liðina og það með stæl.





Luke Kennard skoraði 27 stig, Reggie Jackson var með 21 stig og Andre Drummond bætti við 20 stigum og 18 fráköstum þegar Detroit Pistons vann 115-89 útisigur á New York Knicks og varð þar með áttunda og síðasta liðið inn í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.

Detroit var síðast með í úrslitakeppninni 2015-16 tímabilið en þar á undan hafði liðið er ekki verið með síðan 2009. Blake Griffin gat ekki spilað vegna meiðsla en það kom ekki að sök og bæði Reggie Jackson og Andre Drummond spiluðu ekkert í fjórða leikhluta í þessum örugga sigri.





Dwyane Wade bauð upp á þrennu í síðasta leiknum sínum á ferlinum í NBA-deildinni en hann var með 25 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar fyrir Miami Heat sem varð engu að síður að sætta sig við 113-94 tap á móti Brooklyn Nets. Wade fékk góðan stuðning úr fyrstu röð en góðvinir hans LeBron James, Chris Paul og Carmelo Anthony voru allir mættir á leikinn.









Dirk Nowitzki skilaði líka alvöru tölum í síðasta NBA-leiknum sínum en varð líka að sætta sig við tap eins og Dwyane Wade. Nowitzki var með 20 stig og 10 fráköst þegar Dallas Mavericks tapaði 94-105 á móti San Antonio Spurs. LaMarcus Aldridge var með 34 stig og 16 fráköst fyrir Spurs.





Russell Westbrook náði 34. þrennu tímabilsins í lokaleiknum þegar Oklahoma City Thunder vann 127-116 útisigur á Milwaukee Bucks og tryggði sér sjötta sætið í Austrinu. Oklahoma City spilaði án Paul George en vann samt besta lið deildarinnar sem lék reyndar án hetjunnar sinnar  Giannis Antetokounmpo.

Westbrook var með 15 stig, 17 stoðsendingar og 11 fráköst. Hann er nú jafn Magic Johnson í öðru sæti yfir flestar NBA-þrennur í sögunni en báðir eru þeir með 138. Dennis Schroder skoraði 32 stig og Jerami Grant setti nýtt persónulegt met með 28 stigum.

Kemba Walker skoraði 43 stig í mögulega síðasta leik sínum með Charlotte Hornets en liðið tapaði 114-122 á heimavelli á móti Orlando Magic og missti af úrslitakeppninni. Walker er með lausan samning og fær örugglega freistandi tilboð frá spennandi liðum.











Úrslitin í öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt:

Denver Nuggets - Minnesota Timberwolves    99-95   

Los Angeles Clippers - Utah Jazz    143-137 (126-126)   

Portland Trail Blazers - Sacramento Kings    136-131   

Atlanta Hawks - Indiana Pacers    134-135   

Brooklyn Nets - Miami Heat    113-94   

Charlotte Hornets - Orlando Magic    114-122   

Memphis Grizzlies - Golden State Warriors    132-117   

Milwaukee Bucks - Oklahoma City Thunder    116-127   

New York Knicks - Detroit Pistons    89-115   

Philadelphia 76ers - Chicago Bulls    125-109   

San Antonio Spurs - Dallas Mavericks    105-94   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×