Viðskipti erlent

Forstjóri Korean Air og faðir „hnetudrottningarinnar“ látinn

Gígja Hilmarsdóttir skrifar
Cho Yang-ho lætur eftir sig eiginkonu, tvær dætur og son.
Cho Yang-ho lætur eftir sig eiginkonu, tvær dætur og son. Getty/SeongJoon Cho
Cho Yang-ho forstjóri flugfélagsins Korean Air er látinn sjötugur að aldri. Í fréttatilkynningu flugfélagsins kemur fram að forstjórinn hafi látist á spítala í Los Angeles í gær. Ekki er greint frá dánarorsök forstjórans.

Sonur hans, Cho Won-tae, er talinn líklegur arftaki hans að því er kemur fram í Financial Times.

Forstjórinn hefur ratað í sviðsljós fjölmiðla fyrir ýmis hneykslismál tengd fjölskyldu hans.

Cho Yang hafði nýlega verið vikið úr stjórn flugfélagsins vegna spillingar.

Cho Hyun-ah leidd fyrir rétt í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu í desember 2014Getty/Chung Sung-Jun

Hnetur í poka ollu uppnámi

Elsta dóttir hans, Cho-Hyun-ah, bálreiddist í flugi fyrir fimm árum þegar henni voru færðar hnetur í poka en ekki á diski. Hún skipaði áhöfninni að snúa til baka að hliðinu og vísa yfirflugfreyjunni frá borði. Hún var í kjölfarið fundin sek um að ógna flugöryggi og misnota vald sitt og var dæmd til fimm mánaða fangelsisvistar.

Fékk hún í framhaldinu viðurnefnið „hnetudrottningin“.

Yngsta dóttir hans var í apríl í fyrra ásökuð um að hafa skvett vatni á samstarfsfélaga sinn.

Í kjölfar atvikanna svipti forstjórinn dætur sínar allri ábyrgð innan flugfélagsins og bað kóresku þjóðina og starfsmenn flugfélagsins afsökunar.

Vikið úr stjórn flugfélagsins

Forstjórinn sat sjálfur undir ásökunum um fjársvik og brot á trausti árið 2018. Hann neitaði allri sök en var í kjölfarið vikið úr stjórn Korean Air í síðasta mánuði.

Hneykslin hafa vakið upp umræðu um viðskiptaveldi Suður-Kóreu þar sem fjölskyldufyrirtæki eða chaebols, eins og þau eru kölluð þar í landi, eru sögð ráða ríkjum.

Cho Yang-ho er sagður fyrsti ríkjandi stjórnandi fjölskyldufyrirtækis í Suður-Kóreu sem hefur verið hrakinn frá völdum. Þykir það stór sigur þeirra sem vilja draga úr valdi fjölskyldna í viðskiptaumhverfi Suður-Kóreu.


Tengdar fréttir

Ársfangelsi vegna hnetupoka

Heather Cho braut lög þegar hún lét hætta við flugtak til að reka flugþjón og var hún dæmd í ársfangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×