Viðskipti innlent

Laun inn­flytj­enda átta prósent lægri en laun inn­lendra

Atli Ísleifsson skrifar
Niðurstöður greiningarinnar sýna að þeir innflytjendur sem komu til Íslands fyrir sex til níu árum hafa að jafnaði tvö prósent hærri laun en þeir sem hafa dvalið hér á landi fimm ár eða skemur.
Niðurstöður greiningarinnar sýna að þeir innflytjendur sem komu til Íslands fyrir sex til níu árum hafa að jafnaði tvö prósent hærri laun en þeir sem hafa dvalið hér á landi fimm ár eða skemur. vísir/vilhelm
Innflytjendur voru að jafnaði með tæplega átta prósent lægri laun en innlendir að teknu tilliti til kyns, aldurs, menntunar, fjölskylduhaga, búsetu og ýmissa starfstengdra þátta á tímabilinu 2008 til 2017.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Hagstofu Íslands á launamun innflytjenda og innlendra sem unnin var í samvinnu við innflytjendaráð.

Í frétt á vef Hagstofunnar segir að frekari útreikningar sýni hærri laun hjá innlendum en innflytjendum í störfum sem innflytjendur vinna oftast samkvæmt gögnunum. Þannig hafi skilyrtur launamunur verið 10 prósent í störfum ræstingafólks og aðstoðarfólks í mötuneytum, 11 prósent í störfum verkafólks við handsamsetningu, og átta prósent í störfum við barnagæslu.

„Þegar skoðað var hvaða þættir skýra breytileg laun meðal innflytjenda, ber helst að nefna að innflytjendur fæddir á Norðurlöndunum eru að jafnaði með hærri laun en innflytjendur fæddir í öðrum löndum. Til dæmis eru innflytjendur frá Vestur-Evrópu að jafnaði með 4% lægri laun en innflytjendur frá Norðurlöndunum og innflytjendur frá Austur-Evrópu að jafnaði með 6% lægri laun. Lægstu launin, miðað við innflytjendur frá Norðurlöndunum, hafa innflytjendur frá Asíu, eða 7% að jafnaði.

Niðurstöður greiningarinnar sýndu einnig að þeir innflytjendur sem komu til Íslands fyrir 6 til 9 árum hafa að jafnaði 2% hærri laun en þeir sem hafa dvalið hér á landi 5 ár eða skemur. Þær sýna einnig að þeir sem hafa verið hér í 10 ár eða lengur eru að jafnaði með 3% hærri laun,“ segir í fréttinni.

Nánar má lesa um rannsóknina á vef Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×